Slitastjórn Spron heldur fast við sína túlkun
„Slitastjórn Spron stendur fast á sinni túlkun, þrátt fyrir að þeir séu aleinir um hana,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis. Nefndin fékk slitastjórnina á sinn fund í dag vegna deilna um heimildir til að greiða fyrrverandi starfsmönnum laun úr þrotabúi Spron.
Fyrrverandi starfsmönnum SPRON var um mánaðamótin tilkynnt að þeir fengju ekki lengur greidd laun í uppsagnarfresti. Rúmlega 100 starfsmenn fengu því engin laun 1. júlí. Ákvörðun um að stöðva launagreiðslur var tekin af slitastjórn Spron 30. júní en stjórnin taldi sig ekki hafa heimild til að greiða laun í uppsagnarfresti úr þrotabúi Spron.
Að sögn formanns viðskiptanefndar Alþingis hefur komið fram að nægir fjármunir eru til í þrotabúi Spron til að greiða forgangskröfur, þ.m.t. launakröfur starfsmanna og jafnvel eitthvað upp í almennar kröfur. Þá hafi ekki komið fram upplýsingar um annað en að launakröfur fyrrverandi starfsmanna séu réttmætar.
Slitastjórnin telur lagaheimildir hins vegar skorta til að greiða megi launin.
Lögspekingar sem skrifuðu lögin um fjármálafyrritæki, eru á öndverðum meiði og telja óþarft að breyta lögunum. Slitastjórn sé heimilt að gildandi lögum að greiða fyrrverandi starfsmönnum Spron laun.
Viðskiptanefnd Alþingis leitaði álits réttarfarsnefndar í málinu en nefndin gætir m.a. lagasamræmis.
„Það er ævinlega leitað til réttarfarsnefndar ef skrifa þarf nýjar greinar inn í gildandi lög. Það gerðum við en fengum það svar að óþarft væri að breyta lögunum,“ segir formaður viðskiptanefndar.
Fyrrverandi starfsmenn Spron eru því enn í sömu stöðu, launalausir, á meðan þrætt er um lagatúlkun.
„Við hvöttum slitastjórnina til að leita lausna og þeir hljóta að finna eitthvað út úr því,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis.
Bloggað um fréttina
-
G. Valdimar Valdemarsson Tvennt í stöðunni -
Guðlaugur S. Egilsson Hverjar er ástæður þessarar afstöðu slitastjórnar?
Innlent »
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 6. júlí 2009, Innlent Óvissa með laun starfsmanna
- Mánudagur, 6. júlí 2009, Innlent Slitastjórn Spron er heimilt að greiða laun
- Fimmtudagur, 2. júlí 2009, Innlent Launalausir vegna mistaka
- Laugardagur, 11. júlí 2009, Innlent Lög um laun starfsmanna Spron
- Mánudagur, 13. júlí 2009, Innlent Lög um laun starfsmanna Spron samþykkt.
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
Ferðaþjónusta
GRÍMSEY ÞÓRSHÖFN ÍSAFJÖRÐUR VOP...
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksinsí Suður...





































