Tólf féllu á íslenskuprófi
Alls tóku 206 umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt próf í íslensku í júní síðastliðnum og eru flestir þeirra búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Próf voru bæði skrifleg og munnleg. Af þeim 206 sem tóku prófið voru 12 einstaklingar sem ekki stóðust það og þau lágmarksskilyrði sem sett eru í reglugerð.
Heimilt er að leggja inn umsókn um íslenskan ríkisborgararétt áður en gengist er undir íslenskupróf, en hún verður ekki tekin til endanlegrar afgreiðslu fyrr en niðurstöður úr prófum hafa borist ráðuneytinu.
Prófið var nú haldið í fyrsta sinn en 1. janúar síðastliðinn tók gildi það ákvæði í lögum um íslenskan ríkisborgararétt að umsækjandi skuli hafa staðist próf í íslensku. Prófað var bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Fyrirhugað er að halda próf næst í lok þessa árs.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið samdi við Námsmatsstofnun um að sjá um framkvæmd prófanna, sem halda skal að jafnaði eigi sjaldnar en tvisvar á ári. Í reglugerð um próf í íslensku nr. 1129/2008 er kveðið á um framkvæmd og efni íslenskuprófsins.
Efnisþættir og þyngd íslenskuprófa miðast við lokamarkmið í námskrá menntamálaráðuneytis 2008 um grunnnám í íslensku fyrir útlendinga (240 stundir) að undanskildu markmiði um undirstöðuþekkingu á helstu siðum og venjum í íslensku samfélagi.
Ákveðið var að prófa fjóra þætti íslenskunnar, lesskilning, hlustun, ritun og tal og að allir þættir hefðu sama vægi. Próf voru bæði skrifleg og munnleg. Í skýrslu sem Námsmatsstofnun gerði að loknum prófunum kemur fram að framkvæmdin hafi að flestu leyti tekist vel.
Samning verkefna hafi gengið vel og virðist þyngd þeirra og innihald hafa verið við hæfi fyrir skimunarpróf, en prófinu sé fyrst og fremst ætlað að vera hjálpartæki fyrir umsækjendur en ekki erfitt síupróf eins og tíðkast í sumum löndum. Fram kemur að huga þurfi frekar að prófunum utan höfuðborgarsvæðisins þegar fyrir liggi hversu margir próftakar verði á hverjum stað, að því er fram kemur á vef dómsmálaráðuneytisins.
Innlent »
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 24. mars 2010, Innlent 93% náðu íslenskuprófi
- Miðvikudagur, 17. desember 2008, Innlent Íslenskupróf skilyrði fyrir ríkisborgararétti
- Miðvikudagur, 6. maí 2009, Innlent Ásókn í íslenskupróf fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt
- Mánudagur, 29. desember 2008, Innlent Íslenskupróf skilyrði ríkisborgararéttar
- Mánudagur, 30. mars 2009, Innlent Nítján fá ríkisborgararétt
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































