Aflinn frystur til manneldis
Hákon EA fékk í nótt um 140 tonn af norsk-íslenskri síld og makríl í Seyðisfjarðardýpinu um 40-50 mílur frá landi. Aflinn fékkst eftir fjögurra tíma tog. Um 19% aflans var makríll og síldin þokkalega væn, um 350 g síld. Aflinn er frystur um borð til manneldis.
Skipið er við tilraunaveiðar á síld á svæðinu sunnan við 66°N og má veiða til kl. 8.00 í fyrramálið. Arnþór Pétursson stýrimaður á Hákoni EA sagði í samtali við mbl.is í morgun að mikið líf sé á miðunum en síldin mikið dreifð. Ekki séu margir staðir þar sem hún er í veiðanlegu magni. Eins virðist víða vera hægt að finna makríl.
Norsk-íslenska síldin er heilbrigð og ekki sýkt eins og sum sú íslenska. Arnþór sagði að makríllinn væri ágætis fiskur en ekki jafn stór og sá stærsti sem fékkst í fyrra. Hann fór að verða enn vænni upp úr miðjum júlí í fyrra.
Bæði síldin og makríllinn eru fryst um borð í Hákoni EA. Arnþór taldi að um tvöfalt meira fáist fyrir frystan makríl til útflutnings en fæst fyrir mjöl og lýsi úr makrílnum. „Þetta er dýrasti uppsjávarfiskurinn sem unninn er úr sjó til manneldis. Það er því synd að vera að landa meirihlutanum af honum í bræðslu. Það veitti ekki af fyrir gjaldeyrisöflunina að gera meiri verðmæti úr þessu,“ sagði Arnþór.
Þeim á Hákoni EA duga um 100 tonn á dag úr sjó til að dekka sólarhringsvinnslu, að sögn Arnþórs.
Breyting á reglugerð um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum tók gildi á miðnætti í fyrrinótt. Veiðar úr þeim stofni eru nú einungis heimilar fyrir norðan 66°N og þar má makrílafli ekki fara yfir 10% af heildarafla á hverju þriggja vikna tímabili.
Arnór sagði að þeim þætti línan dregin nokkuð norðarlega ef menn ætli að vera við síldveiðar á nærmiðum fram eftir ágúst mánuði eins og gert hefur verið tvö undanfarin ár. Hann sagði muna miklu í stími að veiða síldina nærri landinu í stað þess að þurfa að leita að henni norður í höf.
Innlent »
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 21. júlí 2008, Innlent Makríll er lottóvinningur
- Mánudagur, 15. júní 2009, Innlent Frysta makríl á Fáskrúðsfirði
- Mánudagur, 5. október 2009, Innlent Makríll gefur milljarða
- Mánudagur, 1. desember 2008, Innlent Veiða síld við hafnirnar
- Þriðjudagur, 15. júlí 2008, Innlent Makríllinn mikil búbót
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































