Haugdrullugur bílþjófur tekinn
Lögreglubílinn var mikið skemmdur eftir hafa reynt að stöðva för stolins Land Cruiser jeppa. Eftirförinni lauk í Holtaseli. Jakob Fannar Sigurðsson
Haugdrullugur bílþjófur var handtekinn í garði í Hryggjarseli í morgun. Honum hafði þá verið veitt eftirför um Breiðholtið í nokkra stund. Maðurinn sinnti engum umferðarreglum, ók á ofsahraða og yfir á rauðu ljósi. Lögreglubíll skemmdist nokkuð þegar honum var ekið á stolna bílinn til að stöðva hann.
Að sögn varðstjóra hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins var tilkynnt um mann sem væri að snuðra í kringum bíla í Fremristekk í Neðra-Breiðholti. Skömmu síðar, um kl. 5.20, hringdi maður sem kvaðst sjá á eftir nýlegum Toyota jeppa sínum út götuna.
Lögreglan fór á eftir jeppanum sem ók greitt upp Breiðholtsbrautina. Þrír lögreglubílar tóku þátt í eftirförinni. Við gatnamótin við Jaðarsel var lögreglubíl ekið á jeppann til að freista þess að stöðva stolna bílinn og skemmdist lögreglubíllinn nokkuð við það. Framstuðarinn og grillið sátu eftir á götunni.
Eltingaleikurinn barst inn í Seljahverfið og ók bílþjófurinn inn í Holtasel þar til hann lenti í sjálfheldu innst í blokkarbotnlanga. Þar stökk þjófurinn út úr stolna bílnum og lagði á flótta. Fleiri lögreglumenn voru kallaðir á staðinn og sló lögreglan hring utan um hverfið og hóf leit að manninum.
Bílþjófurinn fannst svo í húsagarði við Hryggjarsel eftir nokkra leit og var handtekinn. Hann var í annarlegu ástandi og orðinn haugdrullugur eftir að skríða um garðana í Seljahverfi. Maðurinn var færður á lögreglustöðina. Hann er fæddur 1988 og hefur áður komið við sögu hjá lögreglunni.
Bíllinn sem var stolið reyndist ekki mikið skemmdur, að sögn lögreglunnar.Innlent »
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. desember 2009, Innlent Bílþjófur handtekinn í Kópavogi
- Laugardagur, 30. maí 2009, Innlent Veitt eftirför á ofsahraða
- Sunnudagur, 20. desember 2009, Innlent Mildi að ekki fór verr
- Föstudagur, 18. desember 2009, Innlent Lagði á flótta undan lögreglu
- Mánudagur, 22. júní 2009, Innlent Grunur um fíkniefnaneyslu og ölvun
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































