„Of gott veður“ í hálendisferð
Jón Gunnar ásamt ferðafélaganum Ingólfi Stefánssyni og Helgu Viðarsdóttur markaðstjóra hjá 66°N sem styrkir ferðina. mbl.is/Ómar
„Ferð mín um hálendið hefur gengið vel. Það helsta sem hefur verið að plaga okkur er of gott veður, sólskin og uppundir 25 stiga hiti. “ Þetta segir Jón Gunnar Benjamínsson í bréfi frá leiðangri sínum, Þvert yfir landið 2009, sem er nú hálfnaður. Jón Gunnar, sem lamaðist fyrir neðan mitti í slysi árið 2007, hóf ferð sína á miðvikudaginn. Hann ekur á sérútbúnu fjórhjóli yfir hálendi Íslands, frá Mývatni til Reykjavíkur. Leiðin er alls um 700 km og lýkur á sunnudag.
Markmið ferðarinnar, sem styrkt er af ýmsum fyrirtækjum, er m.a. að sýna að fatlaðir geti leyst erfið verkefni og notið þess að ferðast um hálendið, kanna aðgengi fyrir fatlaða í skálum á hálendinu og að koma af stað áheitasöfnun til að kosta bætt aðgengi fatlaðra að Landmannalaugum.
Í bréfinu, sem Jón Gunnar ritar í Drekagili við Öskju segir meðal annars:
„Við beygðum út af þjóðvegi 1 við Grænavatn í Mývatnssveit og við tók moldarslóði upp Suðurárbotna sem var tiltölulega auðveldur yfirferðar, en það var líka það eina sem var auðvelt við leið dagsins! Við tók hið illfæra Ódáðahraun sem átti eftir að krefjast allrar okkar orku….amk. undirritaðs! Með nokkrum góðum stoppum þar sem dáðst var að útsýninu og gónt með áhyggjusvip á stöðuna á bensínmælinum komumst við í gegn áfallalaust. Veðrið var alveg ótrúlegt! 25°C og nánast logn og bara algjör steik! Sandarnir við Dyngjuvatn tóku við eftir hraunið og þá var kominn tími til að gefa í!“
Jón Gunnar segir það hafa verið ánægjulegt að renna í hlað í Drekagili við Öskju og komast af hjólinu eftir tæplega 9 tíma setu. Frábært aðgengi hafi verið að skála Ferðafélags Akureyrar í Drekagili, þar sem gist var í tvær nætur
„[Þar er] aðeins einn þröskuldur sem tilvalið væri að setja við litla skábraut svo staðurinn væri fullkominn.
Húrra Ferðafélag Akureyrar!“
Í dag munu Jón Gunnar og félagar aka við Flæðurnar að Vatnajökli og reyna að aka á jökulinn. Síðan fara þeir í skálann í Gæsavötnum norðvestur af Dyngjujökli. Á morgun aka þeir um Marteinsflæður, Nýjadal og áfram til Hrauneyja og Landmannalauga.
Innlent »
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 13. júlí 2009, Innlent Ætlar að skipuleggja ævintýraferðir fyrir lamaða
- Sunnudagur, 28. mars 2010, Innlent Fór lamaður að eldgosinu
- Mánudagur, 3. maí 2010, Innlent Kristín nýr formaður Rithöfundasambandsins
- Fimmtudagur, 28. janúar 2010, Innlent Peningagjöf í rannsóknarsjóð
- Föstudagur, 15. ágúst 2008, Innlent Fjalladrottningin og fjölskylda hennar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































