Hótelrekstur á ekki að vera í þinghelginni

stækka

mbl.is/RAX

„Ég er þeirrar skoðunar, að standi vilji til almenns hótelreksturs í þjóðgarðinum, eigi hann alfarið að vera í höndum einkaaðila og ætlaður staður í Skógarhólum, við rætur Ármannsfells, en ekki í þinghelginni sjálfri, þar sem Valhöll stóð,“ segir Björn Bjarnason, fyrrvarandi dómsmálaráðherra á vefsíðu sinni í kvöld.

Björn ritar í tilefni bruna Hótels Valhallar á Þingvöllum og rifjar upp pistil sem hann ritaði á síðu sína 28. ágúst 2002. Þar segir að langþráð markmið hafi náðst vorið 2002 þegar ríkið eignaðist landið og húsakostinn á Valhallarlóðinni, sem fram til þess tíma hafði verið í einkaeign innan þjóðgarðsins. Ennfremur segir að forsætisráðuneytið hafi forystu um ákvarðanir varðandi nýtingu húsakostsins í samráði og samvinnu við Þingvallanefnd. Þá hafi aðstaða fyrir starfsmenn þjóðgarðsins verið bætt með nýju starfsmannahúsi við þjónustumiðstöðina á Þingvöllum, en áður voru starfsmennirnir í sumardvöl að Gjábakka, en bæjarhúsið þar brann veturinn 2001/2002.

„Eins og þarna kemur fram brann hús að Gjábakka veturinn 2001/2002. 10. júlí 1970 brann Konungshúsið í aftakaveðri með sorglegu manntjóni eins og sagan geymir og stendur mér nærri.  Nú brennur Valhöll,“ skrifar Björn Bjarnason í kvöld.

Hann segir Þingvallanefnd hafa mótað framtíðarstefnu fyrir þjóðgarðinn árið 2004, þegar hann var skráður á heimsminjaskrá UNESCO. Í henni er gert ráð fyrir aðstöðu til mannamóta á þeim stað, þar sem Valhöll hefur staðið, og takmörkuðu gistirými.

Björn segist þeirrar skoðunar að hótelrekstur í þjóðgarðinum eigi alfarið að vera í höndum einkaaðila og ætlaður staður í Skógarhólum, við rætur Ármannsfells, en ekki í þinghelginni sjálfri, þar sem Valhöll stóð.

Björn segir að Geir H. Haarde hafi ekkert látið að sér kveða varðandi Valhöll sem forsætisráðherra. Frá því að forsætisráðuneytið hafi tekið húsið að sér og útleigu á rekstri þess hafi verið ráðist í nokkrar endurbætur á því.

„Ef ég man rétt hafa fimm rekstraraðilar komið að hótel Valhöll síðan 2002. Bendir það til þess, að umsvif hefðu mátt vera meiri. Mig hefur undrað, að ekki skuli hafa verið kjörin ný Þingvallanefnd eftir kosningarnar 25. apríl, en í nefndinni eiga að sitja þingmenn. Mér skilst, að ákveðið hafi verið að kjósa nýja nefnd nk. mánudag. Þingvallanefnd hefur hins vegar í raun ekki haft neitt  um Valhallarreitinn að segja, því að starfsemi á honum hefur fallið beint undir forsætisráðuneyti samkvæmt því, sem ákveðið var á árinu 2002,“ segir Björn Bjarnason á vefsíðu sinni.

Vefsíða Björns Bjarnasonar

Myndasyrpa: Eldsvoði að Hótel Valhöll

Birtingardagur: Föstudaginn, 10. júlí 2009

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »
Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Negld vetrardekk til sölu
Stærð: 195/65 R15, lítið notuð. Kosta 75 þús. ný, seljast á 40 þús. stgr. Upplýs...
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
15 FM SUMARHÚS
15 fm sumarhús úr þéttum viði â€" fæst me...
Nýleg springdýna 153 cm. á breidd.
Mjög góð og lítið notuð, Lítur út eins og ný, Fæst á aðeins 15000. ef tekin e...
 
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...