Allir kostir jákvæðir

mbl.is

Það er niðurstaða Skipulagsstofnunar að óháð því hvaða kostur verður valinn við að tvöfalda og/eða aðskilja akstursstefnur á Suðurlandsvegi á milli Hólmsár og Hveragerðis, þá hafi þeir allir jákvæð áhrif á umferðaröryggi.  Stofnunin telur sig hins vegar ekki hafa forsendur til að leggja mat á hver kostanna sé bestur með tilliti til umferðaröryggis. Þetta kemur fram í nýju áliti stofnunarinnar.

Neikvæð áhrif á hraun og fugla

Neikvæðustu umhverfisáhrif verða vegna lagningar 2+2 vegar með mislægum vegamótum, sem hefur í för með sér verulega neikvæð áhrif á nútímahraun og búsvæði fugla og talsvert neikvæð áhrif á gróður, landslag, fornminjar og útivist. Umferðarmannvirki vegna 2+2 vegar í nágrenni byggðar hafi verulega neikvæð sjónræn áhrif.  Áhrif á hljóðvist af 2+2 vegi með mislægum vegamótum og hljóðvörnum muni hins vegar ekki verða verulega neikvæð.

Áhrif framkvæmdarinnar á vatnsból og vatnalíf geta orðið talsvert neikvæð verði slys á framkvæmdatíma, en á rekstrartíma verði áhrifin ekki verulega neikvæð.   Áhrif 2+2 vegar með vegamót í plani muni verða talsvert neikvæð áhrif á nútímahraun en minni áhrif á lífríki, landslag, útivist,

hljóðvist og fornminjar heldur en af 2+2 vegi með mislægum vegamótum.   Áhrif  2+1 vegar með vegamót í plani verða nokkuð neikvæð á hraun að mati Skipulagsstofnunar, en ekki verulega neikvæð áhrif á lífríki, landslag, útivist, hljóðvist og fornminjar.

Álitið í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert