Fá vonandi laun á morgun
„Þetta er mikið ánægjuefni og ég vona að starfsfólk Spron fái laun sín greidd í síðasta lagi á morgun,“ sagði Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Alþingi lögfesti í dag frumvarp sem tekur af öll tvímæli um að slitastjórn sé heimilt að greiða launin úr þrotabúi Spron.
Slitastjórn Spron tilkynnti starfsmönnum 30. júní síðastliðinn að laun fyrir júlímánuð yrðu ekki greidd þar sem heimildir skorti til að greiða launin.
Viðskiptaráðherra og formaður viðskiptanefndar Alþingis lýstu þeirri skoðun að gildandi lög heimiluðu launagreiðslurnar og réttarfarsnefnd sagði í áliti sínu til viðskiptanefndar að ekki væri þörf á lagabreytingu vegna greiðslu launa úr þrotabúinu.
Í ljósi þess óhagræðis og tjóns sem þessi staða hefur þegar valdið ríflega 100 fyrrverandi starfsmönnum SPRON og til þess að komast hjá frekara tjóni sem málshöfðun hefur í för með sér með tilheyrandi drætti á greiðslu þessara launakrafna fyrrverandi starfsmanna taldi viðskiptanefnd Alþingis ekki annað fært en að treysta þær heimildir sem slitastjórnin hefur.
Frumvarpið fór í gegnum þrjár umræður á Alþingi í dag og var lögfest með atkvæðum 47 þingmanna eftir tæplega 20 mínútna umfjöllun.
„Stór hluti þess hóps sem ekki fékk laun átti að fá lokauppgjör sitt fyrsta júlí, þ.e. þeir sem höfðu þriggja mánaða uppsagnarfrest. Svo er annar hópur sem hafði sex mánaða uppsagnarfrest og á rétt á launum í ágúst og september, með lokauppgjöri í október. Ég veit að launakeyrslan fyrir júlí var tilbúin og því ætti að vera fljótlegt að klára málið,“ sagði Friðbert Traustason.
Tuttugu til þrjátíu fyrrverandi starfsmenn Spron voru ráðnir til Dróma, nýs fyrirtækis sem tók við eignum og skuldum sparisjóðsins. Þeim er ætlað að vinna að uppgjöri þrotabúsins og gera sem mest úr eignum búsins. Friðbert segir að enn sé óútkljáður ágreiningur um stéttarfélagsaðild þessara starfsmanna. Slitastjórn hefur að óbreyttu, ekki viljað fallast á að fólkið haldi áfram stéttarfélagsaðild að Samtökum starfsfólks fjármálafyrirtækja og vill að það gangi í VR.
„Þar með glatar starfsfólkið réttindum sem það hefur áunnið sér í félaginu. Og það er í raun eina skýringin sem ég hef fengið frá slitastjórninni, að það sé ekki hægt að hafa fólkið í stéttarfélagi þar sem hluti hópsins á allt að sex mánaða uppsagnarfrest. Þetta mál er með ólíkindum og lausn ekki í sjónmáli,“ segir Friðbert Traustason.


































