Erum nokkuð vel varin
Reuters
silja@mbl.is
Jafnvel þótt bæði norsk og bresk stjórnvöld hyggist bólusetja alla íbúa beggja landa við svínaflensu, munu þau þurfa að forgangsraða bóluefninu með sama hætti og íslensk stjórnvöld. Þetta segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir og bendir á að bóluefnið muni berast þjóðunum í smáum skömmtun frá hausti og fram að áramótum.
„Á þeim tímapunkti höfum við hins vegar möguleika á að kaupa meira bóluefni ef aðstæður gefa tilefni til,“ segir Haraldur. Að hans sögn felst gríðarlegur kostnaður í því að kaupa bóluefni fyrir alla þjóðina sem verði svo hugsanlega aldrei þörf fyrir.
„Menn verða því að stefna þessu inn í einhvern skynsemisfarveg. Við metum stöðuna sem svo að þegar bóluefnið loks verður tilbúið með haustinu, muni útbreiðsla svínaflensunnar hafa verið með þeim hætti að stór hópur landsmanna verði þegar búinn að fá veikina,“ segir Haraldur og bætir við: „Ég tel að við séum nokkuð vel varin með því að bólusetja helming þjóðarinnar og umfram allt þá sem eru í áhættuhópi, s.s. fólk með undirliggjandi sjúkdóma á borð við hjarta- og lungnasjúkdóma.“
Haraldur minnir á að í landinu séu inflúensulyf fyrir tæplega 40% landsmanna, en lyfin eru notuð til að lækna þá sem sýkst hafa af veirunni. „Reynslan sýnir að árlega sýkjast um 10% landsmanna í hverjum inflúensufaraldri, en í heimsfaraldri gerum við ráð fyrir að 50% landsmanna sýkist,“ segir Haraldur, en tekur fram að enn sé þó of snemmt að spá fyrir um hvernig svínaflensan muni hegða sér. Spurður hvernig forgangsraðað verði, þ.e. hverjum bóluefnið muni standa til boða hérlendis, segist Haraldur búast við því að sóttvarnastofnun ESB komi með ákveðnar ráðleggingar. Segir hann erfitt að meta þetta fyrirfram og bregðast þurfi við þegar ljóst verði hvaða hópar verði fyrir mestu sjúkdómsbyrðinni.
Innlent »
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 12. júlí 2009, Innlent Bóluefni á leið til Íslands
- Föstudagur, 30. október 2009, Innlent Óhætt að nota Pandemrix
- Fimmtudagur, 15. október 2009, Innlent Byrjað að bólusetja
- Föstudagur, 30. október 2009, Innlent Almenn bólusetning í nóvember
- Miðvikudagur, 26. ágúst 2009, Innlent Áhættuhópar fá ókeypis
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































