Skylda til að kanna einelti
Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að jákvæð og bein skylda geti hvílt á ráðherra að taka eineltismál á vinnustað til umfjöllunar. Ýmis kvörtunarmál hafa borist embætti Umboðsmanns Alþingis sem tengjast einelti á vinnustað og voru þau tilefni þess að Umboðsmaður ákvað að kanna að eigin frumkvæði hvort og hvaða skyldur hvíldu á ráðherra til að bregðast við slíkum tilvikum með raunhæfum og virkum hætti.
Umboðsmaður rakti ákvæði 2., 13. og 14. greinar stjórnarskrár og sagði að af þeim leiddi að ráðherrar færu með æðsta vald í stigskiptri stjórnsýslu og hefðu eftirlit og bæru ábyrgð á starfsemi ráðuneyta og þeirra stjórnvalda sem teldust lægra sett gagnvart ráðherra.
Umboðsmaður taldi að almennt væru þær skyldur sem ákvæði laga um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum og reglugerðar um einelti á vinnustöðum settu á atvinnurekanda á höndum forstöðumanns opinberrar stofnunar. Hins vegar yrði að huga nánar að sérstöðu hins opinbera. Benti umboðsmaður á að ráðuneyti gæti á grundvelli stjórnunarheimilda sinna tekið mál til umfjöllunar að eigin frumkvæði. Ráðuneytið hefði hins vegar ekki aðeins heimild til slíks heldur gæti einnig hvílt jákvæð athafnaskylda á því í ákveðnum tilvikum.
Þessi skylda byggðist á grundvelli yfirstjórnunar- og eftirlitsheimilda þegar fyrir lægi að mati ráðuneytis að þess hefði ekki verið gætt um nokkurn tíma í starfsemi undirstofnunar að haga innra skipulagi hennar og málsmeðferð, hvort sem væri inn á við gagnvart starfsmönnum stofnunar, eða út á við gagnvart borgurunum, með þeim hætti sem áskilið væri í lögum.
Umboðsmaður hafði jafnframt átt í bréfaskriftum við heilbrigðisráðuneytið þar sem ráðuneytið lýsti því yfir að það teldi ekki í hlutverkahring sínum að hafa „bein afskipti“ af einstökum starfsmannamálum eða taka „beina afstöðu“ til ágreinings í slíkum málum. Ráðuneytið taldi þessa afstöðu sína fyllilega í samræmi við lög. Umboðsmaður var á öðru máli.
Nálgast má álitið hér.
Innlent »
-
Fólk er undrandi og reitt
- „Þetta gengur ágætlega“
- LSR tapaði 101 milljarði
- LV tapaði 18 milljörðum á Kaupþingi
- Gæsluvarðhald vegna hnífstungu
- Ekki fleiri á nöglum
- Ræða þarf stjórnarkjör
- Fór í aðgerð eftir hnífstungu
- „Skýrslan kemur ekki á óvart“
- Hríðarveður og slæmt skyggni
- Kúlulánin komu á óvart
- Borginni mistekist við sameiningar
- 70 stöðvaðir í eftirliti
- Grindavík reynir að innheimta lán
- Mest tap af Baugi og Existu
- Nýr formaður Varðar
- Jóna Hrönn fékk köku ársins
- Bjartsýni í bland við bölsýni
- Endurskoða þarf lög um sjóðina
- Sætti ekki eftirliti
- Brotin skipulagðari en áður
- Flytja hönnunardeildina
- Banna aukabúnað í sláttuorf
- Óeðlilegt hjartalínurit algengt
- Herör gegn misneytingu á börnum
- Sinalco seldist upp
- Rekstur lífeyrissjóða skoðaður
- Kostnaður við Herjólf umfram heimildir
- Ræða sölu til að fjármagna lán
- Snjómokstur langt yfir áætlun
- Niðurstöður ómskoðunar rannsakaðar
- Ráðuneytið þarf að efla eftirlit
- Líti á flugvöllinn sem tækifæri
- Klofin þjóð í afstöðu til ákæru
- Áfram í haldi vegna smygls
- Auka þarf rannsóknarheimildir
- Útibú umboðsmanns skuldara á Akureyri
- Greiðir 5,2 milljarða í þróunarsjóð EFTA
- Harður árekstur við Grundartanga
- Allir sammála um endurskoðun
- Kannabisræktun á eyðibýli
- Vilja dýpri umræðu um aðildarferlið
- Meðferðin nú veitt á Íslandi
- Illugi: Bankarnir og skuldir heimilanna
- Skurðdeild lokað vegna sýkingar
- Kærð fyrir ólögmæta háttsemi
- Barist gegn barnaníði á heimsvísu
- Páskasúkkulaði frá ABC
- Sjóvá endurgreiðir 381 milljón
- Bilun á netsambandi Vodafone
- Hallur Hallsson: RÚV málpípa valdhafanna
- Vilja endurnýja sýningarbúnað
- Hesthús verði skattlögð eins
- Grafalvarleg staða Sandgerðisbæjar
- Landi fannst í heimahúsi
- Steinn Jónsson: PIP-púðar og gæðavottorð
- Snjór á Holtavörðuheiði
- E-töflur á Akureyri
- Gistinóttum fjölgar um 27% í desember
- Ferðamönnum fjölgar um 17,5%
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 2. október 2009, Innlent Athugasemdir við málsmeðferð við ráðningu orkumálastjóra
- Föstudagur, 8. janúar 2010, Innlent Skortir á rökstuðning fyrir niðurstöðu gjafsóknarnefndar
- Föstudagur, 25. júlí 2008, Innlent Reglugerð um „tollinn" hefur ekki lagastoð
- Laugardagur, 17. júlí 2010, Innlent FME og Seðlabanki vilja frest
- Miðvikudagur, 25. febrúar 2009, Innlent Ofbeldi og einelti á ekki að líðast
-
Átök fram á nóttu í Egyptalandi
-
Drottning plantar afmælistré
-
Sýrlenskar konur mótmæla líka
-
Meira en 200 látnir vegna kulda
-
Verðum að læra af reynslunni
-
Sturtuðu mold á götur Parísar
-
Fólk er undrandi og reitt
-
Hverjir ná árangri á Twitter?




































