Dynjandisheiðarvegur í hálfa öld
Í ár eru 50 ár síðan vegasamband komst á milli Ísafjarðar og Patreksfjarðar og milli Ísafjarðar til Reykjavíkur, um Dynjandisheiði. Af því tilefni verður efnt tilhátíðahalda á heiðinni annað kvöld.
Það var árið 1959 sem vegasamband komst á yfir Dynjandisheiði. Áður tók það um það bil sólarhring að aka frá Ísafirði til Reykjavíkur.
Til að minnast hálfrar aldar afmælis Dynjandisheiðarvegar hefur verið blásið til hátíðar annað kvöld.
Dagskráin hefst á heiðinni klukkan 19 og stendur í tvær klukkustundir. Þar verður m.a. til sýnis jarðýta sem notuð var við vegagerðina fyrir hálfri öld. Hún hefur verið gerð upp og er vel gangfær.
Á heiðinni er ætlunin að afhjúpa áskorun til stjórnvalda um frekari samgöngubætur á svæðinu. Framkvæmdir við Dynjandisheiði eru á gildandi samgönguáætlun. Vegagerðin telur unnt að leggja heilsársveg yfir Dynjandisheiði en reiknast til að vegurinn verði þrefalt dýrari en miðað var við í fyrri áætlunum og muni kosta um 4 milljarða króna. Stystu raunhæfu jarðgöng undir heiðina myndu hins vegar kosta 14 milljarða króna.
Á Dynjandisheiðarhátíðinni verða flutt ávörp og boðið upp á kjötsúpu og kórsöng. Þá mun Gísli Eiríksson frá Vegagerðinni fjalla um möguleika til úrbóta vegna heilsárssamgangna milli byggðarlaga á Vestfjörðum.
Dagskrá hátíðarinnar:
- Kristinn H. Gunnarsson setur hátíðina
- Tónlistaratriði. Halldór Smárason og Halldór Sveinsson
- Ávarp. Ásvaldur Guðmundsson, ýtustjóri sem vann við vegagerðina
- Flutt ljóð Guðmundar Inga Kristjánssonar í tilefni af vegagerðinni fyrir 50. árum. Elfar Logi Hannesson leikari flytur ljóðið
- Ávarp. Möguleikar til úrbóta vegna heilsárssamgangna milli byggðarlaga á Vestfjörðum. Gísli Eiríksson frá Vegagerðinni
- Tónlistaratriði. Halldór Smárason og Halldór Sveinsson
- Ávarp. Sólrún Ólafsdóttir, Patreksfirði fyrir hönd íbúa
- Rannveig Björg Þórarinsdóttir, óperusöngkona syngur
- Ávarp. Kristján Möller, samgönguráðherra
- Kórsöngur
Að lokinni hátíðardagskrá leikur hljómsveitin Yxna frá Ísafirði.
Innlent »
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 6. ágúst 2009, Innlent Starfshópur skipaður um nýjan veg um Dynjandisheiði
- Laugardagur, 5. júní 2010, Innlent Strandsiglingar álitlegar
- Fimmtudagur, 1. október 2009, Innlent Lyngdalsheiðarvegur ekki í umhverfismat
- Miðvikudagur, 5. nóvember 2008, Innlent Varað við grjóthruni úr Óshlíð
- Þriðjudagur, 13. október 2009, Innlent Eimskip lækkar verðskrá á Vestfjörðum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































