Ekki beinlínis frumlegt
Svavar Gestsson, sem var formaður Icesave-nefndarinnar, svarar ummælum Þórs Saari, þingmanns Borgarahreyfingarinnar, í dag en Þór sagði í viðtali við mbl.is að Svavar hafi verið fullkomlega vanhæfur í starfi sínu.
„Maður sér það bara á honum þegar maður talar við hann að hann hefur ekkert í þetta að gera, ekki nokkurn skapaðan hlut. Það sem meira er – enginn samninganefndarmannanna, held ég.“ Þetta segir Þór Saari alþingismaður um mig og samninganefnd mína í Icesave-málinu. Fyrirsögnin er: Svavar fullkomlega vanhæfur.
Af þessu tilefni skal þetta sagt: Ég er vanur að taka við svona kveðskap í gegnum langa tíð í stjórnmálum áður en ég varð sendiherra. Síðustu árin sem sendiherra hef ég verið laus við svona orðaleppa en neita því ekki að ég bjó mig undir það er ég tók við formennsku í Icesave-nefndinni að ég gæti átt von á ýmsu. Þoli það vel þótt því sé reyndar ekki að neita að ég finn að skrápurinn er aðeins þynnri en hann var, sérstaklega þegar reynt er að nudda öðrum upp úr því sem ég á einn.
En hitt skal sagt: Ég mótmæli af öllum kröftum atlögu Þórs Saari að samninganefnd minni og samstarfsmönnum. Þar er hæfur maður í hverju rúmi og enginn þeirra hefði mátt vera fjarri vettvangi. Hið sama segi ég um þau sem störfuðu næst nefndinni allan tímann. Þetta fólk eru nefndarmennirnir Indriði H. Þorláksson, þá settur ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, Martin Eyjólfsson, sviðsstjóri í utanríkisráðuneytinu, Páll Þórhallsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu, Áslaug Árnadóttir, vararáðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu, og Sturla Pálsson, yfirmaður alþjóðasviðs Seðlabankans. Ég nefni líka hér til sögu lögfræðingana Sesselju Sigurðardóttur og Einar Gunnarsson og svo síðast en ekki síst doktorsnema í vísindaheimspeki, Hugin Frey Þorsteinsson, minn nánasta samstarfsmann.
Ég heiti á fólk þótt það vilji sækja mál sitt og verja af hörku að láta þetta öfluga lið sem ég taldi upp í friði. Vandinn er hins vegar sá að hálfsannleikur oftast er óhrekjandi lygi. Það er erfitt að svara svona áburði eins og þeim er fram kemur í viðtali mbl.is við Þór Saari, ekki síst þegar hann bætir við orðunum „held ég“. Í svona máli eiga alþingismenn nefnilega helst ekki að fullyrða það sem þeir halda. Bara það sem þeir vita.
Alþingismanninum virðist vera í nöp við mig persónulega. Mér er ekki í nöp við hann. Hann er ósammála mér um Icesave-samninginn. Sú afstaða byggist vonandi á því sem hann veit en ekki því sem hann heldur. Hann boðaði ný vinnubrögð á alþingi. Persónulegt skítkast er ekki beinlínis frumlegt.



































