Ungir jafnaðarmenn fagna aðildarumsókn
Ungir jafnaðarmenn hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fagna fagna samþykki Alþingis fyrir aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
Yfirlýsingin fer í heild sinni hér á eftir:
„Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, fagna því að Alþingi hafi samþykkt að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Ungir jafnaðarmenn hafa frá stofnun árið 1999 verið fylgjandi umsókn um aðild að ESB, meira að segja áður en Samfylkingin tók upp sömu stefnu fjórum árum síðar. Þar áður hafði Samband ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfing Alþýðuflokksins, haldið málstað Evrópusinna á lofti í hartnær áratug.
Nú er þetta baráttumál jafnaðarmanna til tveggja áratuga loks komið á dagskrá. Samninganefnd Íslands mun hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið með það að markmiði að ná fram eins hagstæðum samningi fyrir Ísland og auðið er. Að því loknu gefst þjóðinni tækifæri að samþykkja samninginn eða synja honum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Nauðsynlegt er að haft verði víðtækt samráð um umsóknina og að samningsferlið verði galopið svo allir Íslendingar geti fylgst með því. Þetta er hið lýðræðislega ferli sem Ungir jafnaðarmenn hafa lengi kallað eftir.
Ungir jafnaðarmenn minna jafnframt á að ESB málið er hafið yfir flokkslínur og að nær allir þingflokkar klofnuðu í atkvæðagreiðslu um málið á Alþingi. UJ hvetja því þingmenn og landsmenn alla til að kynna sér Evrópusambandið og aðildarsamning Íslands og taka að því loknu upplýsta afstöðu til málsins. ESB aðild er ein stærsta ákvörðun sem Ísland hefur staðið frammi fyrir. Hana verður að skoða óháð flokksskírteinum."
Innlent »
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. janúar 2009, Innlent Ungir jafnaðarmenn vilja vinstristjórn
- Þriðjudagur, 28. apríl 2009, Innlent Skylt að sækja um ESB-aðild
- Fimmtudagur, 16. júlí 2009, Innlent Fagna ákvörðun Íslendinga
- Fimmtudagur, 16. júlí 2009, Innlent Hefur ótvíræð áhrif í Noregi
- Sunnudagur, 2. nóvember 2008, Innlent Hafna upptöku norskrar krónu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































