Staða Þorgerðar Katrínar veikist

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir stækka

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mbl.is

Morgunblaðið Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is

Pólitísk staða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, þykir hafa veikst til muna í gær, þegar hún ákvað að sitja hjá í atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um ESB-aðildarumsókn.

Jákvæð afstaða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur til Evrópusambandsaðildar hefur verið kunn, en það mun, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, samt sem áður hafa komið á óvart að varaformaður flokksins stóð ekki með formanni Sjálfstæðisflokksins og öðrum þingmönnum við atkvæðagreiðsluna.

Mikil reiði er meðal margra þingmanna Sjálfstæðisflokksins í garð Þorgerðar Katrínar og í samtölum við þingmenn Sjálfstæðisflokksins í gær kom ítrekað fram það sjónarmið, að þingmenn ættu bágt með að sjá að formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins gætu átt heilt og gott samstarf í forystu flokksins, eftir að Þorgerður Katrín ákvað hjásetu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ekið var á manninn í Austurstræti.

Handteknir fyrir að keyra á mann

11:03 Tveir menn voru handteknir á heimili annars þeirra á sjötta tímanum í morgun vegna gruns um að annar hvor þeirra hefði ekið á mann í Austurstræti á fimmta tímanum. Mennirnir gista fangageymslur og verða yfirheyrðir þegar líður á daginn. Meira »

Lætur hátt í fangaklefa

10:51 Lögregla höfuðborgarsvæðisins var kölluð að samkvæmi við Smiðjustíg á sjöunda tímanum í morgun þar sem einn gestanna var með uppsteyt. Að sögn lögreglu var maðurinn óviðráðanlegur af bræði og réðst hann á lögreglumenn sem hugðust vísa honum úr samkvæminu. Hann var handtekinn og er í fangaklefa, þar sem hann lætur hátt, að sögn lögreglu. Meira »

Martröð í matarboði myndskeið

Stuttmyndahornið: Martröð í matarboði
10:33 Myndin Takk fyrir mig er fimmta myndin sem MBL Sjónvarp sýnir í samvinnu við Kvikmyndaskóla Íslands. Myndin fjallar um matarboð sem virðist ætla að ganga vel þar til einn gestanna uppgötvar skuggahliðar gestgjafans. Meira »

Fjöruverðlaun eftir viku

Bækur níu kvenna eru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna.
09:42 Misritað var í Morgunblaðinu í gær að Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, verði afhent í Iðnó í dag, en rétt er að það verður eftir viku, 18. febrúar næstkomandi, en þá verður haldin Góugleði í Iðnó. Gestur verðlaunahátíðarinnar verður rithöfundurinn og grínistinn Sandi Toksvig. Meira »

Opið á skíðasvæðum

Fólk á skíðum.
09:26 Þó svo auð jörð sé í höfuðborginni er víða hægt að skíða í dag. Þannig fer fram Oddskarðssmót og þar verður keppt í svigi 9 til 12 ára. Opið verður í Oddsskarði frá klukkan 10 til kl. 16 og eru aðstæður býsna góðar. Einnig er opið á skíðassvæði Dalvíkur og á skíðasvæðinu í Tindastól. Meira »

Leikstjórinn kom inn sem ljón

Skot úr sýningunni um Galdrakarlinn í Oz.
10:09 Leikarinn Halldór Gylfason var fluttur á slysadeild í gær þegar hann slasaðist við sýningu á Galdrakarlinum í Oz. Lúga opnaðist fyrir mistök á sviðinu þegar Halldór gekk um það og datt hann niður um hana. Tjaldið var snögglega dregið fyrir og varð úr að leikstjóri sýningarinnar kláraði sýninguna. Meira »

Enn skelfur við Grímsey

Skjálftar á landinu í morgun.
09:38 Töluverður fjöldi jarðskjálfta hefur mælst í nótt og fram á morgun við Grímsey. Sá stærsti sem mælst hefur var um tvö stig og voru flestir af svipuðum styrkleika. Meira »

Fíkniefnasali handtekinn

08:44 Lögerglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann, sem var að selja fíkniefni við veitingahús í borginni en maðurinn var með fíkniefni í söluskömmtum innanklæða. Meira »

Braut rúðu í lögreglubíl

08:40 Maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði í nótt eftir að hann braut rúðu í lögreglubíl.  Meira »

„Mjög sérstök tilfinning“

Jónsi og Greta Salóme.
Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

„Ég er í skýjunum“

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.
Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

Úrslitakeppnin hafin í Hörpu

Keppnin fer fram í Hörpu.
Í gær, 20:33 Úrslitakvöld forkeppni Evróvisjón er hafið í Hörpu, en í kvöld kemur í ljós hverjir keppa fyrir hönd Íslands í lokakeppni söngvakeppninnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídjan síðar á árinu. Meira »

Fjör á 112-deginum á Húsavík

Börnum og unglingum var boðið í stutta sjóferð á Jóni Kjartanssyni, báti Björgunarsveitarinnar Garðars.
Í gær, 17:35 Víðar var haldið upp á 112-daginn en aðeins í Reykjavík. Þannig lögðu fjölmargir leið sína í björgunarsveitarhúsið Naust á Húsavík þar sem viðamikil dagskrá fór fram. Meira »

Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti

Ögmundur Jónasson
Í gær, 16:46 Ögmundur Jónasson, innanríkis- og mannréttindaráðherra Íslands, segir það vel koma til greina að skoða með hvað hætti Ísland geti beint spjótum sínum að mannréttindabrotum í Aserbaídsjan í kjölfar Evróvisjón keppninnar. Meira »

Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka

Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.
Í gær, 19:52 Jafnmargir eru því fylgjandi að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og andvígir því, samkvæmt niðurstöðum úr könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Meira »

Hvessir af suðri seint í kvöld

Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt.
Í gær, 17:16 Heldur hvessir af suðri í kvöld og hlýnar á landinu, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt, en slyddu og rigningu í byggð. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og mjög hvössum vindhviðum. Meira »

Ekki hika – hringdu til öryggis

Meðal þess sem var í boði, var að læra hvernig á að beita hjartahnoði.
Í gær, 16:46 Gagn og gaman, voru þau orð sem gestir í Smáralind höfðu um 112-daginn sem þar var haldinn í dag. Markmið dagsins var að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. En ekki síður voru viðbragðsaðilar með umfangsmiklar kynningu. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hjólhýsi og húsbílar óskast á skrá strax
Vantar allar gerðir hjólhýsa og húsbíla á skrá Bein sala eða skipti í boði. ...
COSTA BRAVA PLAYA DE ARO
Costa Brava - Playa de Aro Gullna ströndin, fyrir fjölskylduna í sumarleyfið. st...
Ruggustóll
Til sölu- . Keyptur í Fríðu frænku. Verð 15 þús. Uppl. í s. 867-4183 ...
Subaru Impreza 2001 hlaðbakur 650 þ.
Góður beinskiptur að norðan. Ekinn 138 þ. CD-spilari og 16" álfeglum. Verð: 650 ...
 
Stúkan gimli
Félagsstarf
l Gimli 6012020619 III°...
Samkoma
Félagsstarf
Kaffi, sunnudag kl.16 Fyrir samko...
Aðalfundur kjördæmisráðs suðvesturkjördæmis sjálfstæðisflokksins

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suð...
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Framhald uppboðs á...