Væntingar um töluverðar kjarabætur
„Það er ljóst að starfsmenn hafa eðlilega væntingar til töluverðra hækkana á sínum samningi,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness um kjaraviðæður vegna starfsmanna hjá Norðuráli. Undirbúningur vegna kjarasamnings starfsmanna Norðuráls hefst að loknum sumarleyfum. Álverð hefur hækkað um 26% frá því í febrúar og segir Vilhjálmur ljóst að þróun álverðs muni hafa töluverð áhrif á gang viðræðnanna.
Vilhjálmur Birgisson segir að nú séu allflestir kjarasamningar Verkalýðsfélags Akraness frágengnir, þ.e.a.s. framlenging á kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins, Launanefnd sveitarfélaga og við Ríkið. Nú sé einungis einn kjarasamningur eftir á þessu ári en það er kjarasamningur Norðuráls. Sá samningur rennur út í lok þessa árs.
Formaður VLFA segir að þegar gengið var frá samkomulagi við forsvarsmenn Norðuráls í febrúar sl. þá hafi álverð verið í sögulegu lágmarki, þegar fengust undir 1300 dollarar fyrir tonnið. Staðan í dag sé mun betri. Í dag sé álverðið t.a.m. komið upp í 1635 dollara fyrir tonnið sem er hækkun upp á 26% frá því í febrúar.
„Vissulega eru blikur á lofti varðandi álverð til lengri tíma, sérstaklega vegna birgðasöfnunar á heimsvísu, en Norðurál stendur vel að vígi hvað varðar sölu á áli því þeir hafa tryggt sölu á öllum sínum afurðum í það minnsta til ársins 2016,“ segir Vilhjálmur.
Hann segir skipta gríðarlega miklu máli að álverð haldi áfram að hækka, enda muni það gefa Verkalýðsfélagi Akraness byr undir báða vængi þegar að kemur að kjarasamningagerð fyrir starfsmenn Norðuráls.
„Það er skylda þeirra fyrirtækja sem eru hér á álmarkaðnum að greiða sínum starfsmönnum góð laun enda er hér um að ræða fyrirtæki sem eru að selja sínar afurðir í erlendri mynt og því til viðbótar hafa þessi fyrirtæki aðgengi að hagstæðum orkusamningum og síðast en ekki síst kost á afar hæfu og tryggu starfsfólki,“ segir formaður VLFA.
Innlent »
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 6. nóvember 2009, Innlent Fundað í Karphúsinu vegna kjarasamninga Norðuráls
- Mánudagur, 19. janúar 2009, Innlent Árangurslítill fundur hjá ríkissáttasemjara
- Þriðjudagur, 6. janúar 2009, Innlent Gengur hægt að semja á Grundartanga
- Fimmtudagur, 8. apríl 2010, Innlent Norðurál metur nýtt tilboð starfsmanna
- Miðvikudagur, 10. mars 2010, Innlent Kjaramál Norðuráls rædd hjá ríkissáttasemjara
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































