Engin vissa um meirihluta fyrir Icesave

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. Ómar Óskarsson

Hart er lagt að þingmönnum, stjórnarliðum jafnt sem stjórnarandstæðingum, að flýta umfjöllun um Icesave-málið en ólíklegt er, að það verði afgreitt úr nefnd fyrr en um miðja næstu viku.

Stjórnarandstæðingar telja samt enn langt í land með, að Icesave-málið verði þingtækt, segja að enn vanti upplýsingar og gögn, sem óskað hafi verið eftir.

Það er því með öllu óvíst, að það takist að ljúka sumarþinginu fyrir aðra helgi enda eru líka uppi efasemdir um Icesave-samninginn í báðum stjórnarflokkunum. Það er því eins víst, að Icesave-samningur í núverandi mynd yrði felldur í atkvæðagreiðslu á þingi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert