Samningnum verður ekki breytt

Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason

Björn Valur Gíslason, alþingismaður VG og varaformaður fjárlaganefndar, telur að hægt verði að afgreiða Icesave-frumvarpið úr nefnd um miðja næstu viku, að því er fram kom í Ríkisútvarpinu í kvöld.

Björn Valur sagði að hann teldi að hægt yrði að afgreiða frumvarpið úr nefnd á þriðjudag eða miðvikudag. Hann sagði að samningnum verði ekki breytt. Hann muni standa óhaggaður. Hins vegar megi vel hugsa sér að hnykkja betur á endurskoðunarákvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert