Aðalmeðferð Papeyjarmálsins frestað

stækka

Árni Sæberg

Dómari í Héraðsdómi Reykjavíkur, Guðjón Marteinsson, frestaði rétt í þessu aðalmeðferð í Papeyjarmálinu svonefnda þar sem lögfræðingur meints höfuðpaurs fór fram á frávísun þar sem dómstólinn hafi ekki refsilögsögu yfir skjólstæðingi hans sem er hollenskur.

Eins og fram hefur komið lagði lögreglan hald á rúmlega 100 kíló af fíkniefnum á Austurlandi í apríl. Um er að ræða amfetamín, marijúana, hass og e-töflur. Um helmingur fíkniefnanna reyndist vera amfetamín, eða 55 kg. Einnig var mikið af marijúana, eða 34 kg, og hassi, eða 19,5 kg. E-töflurnar voru rúmlega 9.400 talsins. Talið er að fíkniefnin hafi verið flutt hingað með seglskútunni Sirtaki. För skútunnar var stöðvuð djúpt út af SA-landi eftir mikla eftirför.

Ólafur Örn Svansson, lögmaður Hollendingsins, sem ákærður er fyrir aðild að smyglinu, lagði fram frávísunarkröfu fyrir dómara í morgun. Í greinargerð sem fylgdi með kemur fram að hann krefjist þess að málinu verði vísað frá dómi þar sem íslensk yfirvöld hafa enga refsilögsögu yfir Hollendingnum. Því geti dómsstólar ekki tekið efnislega afstöðu til ætlaðrar brota sem honum er gefið að sök samkvæmt ákæru. Með refsilögsögu er að lögum átt við vald ríkis til þess að setja refsilög og til að framfylgja þeim með rannsókn, dómi og refsifullnustu.

Í greinargerð verjanda segir m.a.: „Af framangreindu er fullkomlega ljóst að íslenska ríkið hefur ekki lögsögu yfir hollenskum ríkisborgara sem siglir auk þess undir fána annars ríkis. Sú niðurstaða leiðir eðli málsins samkvæmt ekki til þess að ákærði teljist laus allra mála ef sannað þykir að hann hafi gerst brotlegur við lög þessara ríkja, en íslenska ríkið hefur skuldbundið sig um að upplýsa þessi lönd um ætluð brot. Reglur þjóðarréttar leiða einvörðungu til þess að réttað verði yfir honum í slíku máli annað hvort í Belgíu, á grundvelli reglna um lögsögu fánaríkis, eða í Hollandi, á grundvelli reglna þjóðarréttar um þjóðerni.“

Þar er einnig bent á að hvergi í gögnum málsins komi fram að ákærði hafi farið inn fyrir íslenska landhelgi og því sé útilokað að ætluð brot hans heyri undir íslensk refsilög.  Að mati verjanda var handtaka ákærða ólögmæt, en það skýrist af því að handtakan hafi farið fram utan landhelgi Íslands í kjölfar ólögmætrar óslitinnar eftirfarar. 

Dómari sá sér ekki annað fær en að fresta aðalmeðferð málsins sem fram átti að fara í dag. Ef dómari samþykkir frávísunarkröfuna þá hefur saksóknari heimild til þess að kæra ákvörðun dómara til Hæstaréttar. Ef dómari hins vegar fellst ekki á frávísunarkröfuna, en hún verður tekin fyrir í héraðsdómi klukkan 9 í fyrramálið, þá mun aðalmeðferð í málinu fara fram að viku liðinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »
Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GARÐSKÁLI GEYMSLUR GESTAHÚS
Garðskáli - geymslur - gestahús Vönduð hús ú...
Til sölu Ford Ekonline húsbíll ... 350 þús!!!:)
Til sölu Ford Econoline húsbíll árg. '90, sjálfsk. ek. 149 þús. sex cl. bensín l...
Glæsilegir meðferðabekkir frá USA
EarthLite bekkir frá USA. Bestu gæði. www.Rikki.is 561 9400...
Traust fyrirtæki óskar eftir íbúð á leigu
Óska eftir íbúð á leigu á svæði 109 eða 111. Þrjú eða fjögur herbergi. Að...
 
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...