Sumarbústaður tekinn í leyfisleysi

Bústaðurinn er horfinn af lóðinni og standa undirstöðurnar einar eftir. stækka

Bústaðurinn er horfinn af lóðinni og standa undirstöðurnar einar eftir. Skessuhorn.is

Sumarbústaður sem stóð á lóð í Hvammslandi í Skorradal var í júní fluttur burt án nauðsynlegra leyfa. Bústaðurinn stendur nú í Lundarreykjadal. Upp komst um flutninginn þegar bjóða átti bústaðinn upp en á lóðinni hvíla verulegar skuldir.

Fréttavefurinn Skessuhorn greinir frá því að bústaðurinn hafi verið fluttur burt í byrjun júní. Var þetta 75 ermetra hús sem stóð á lóðinni Furuhvammi 1 í landi Hvamms. Strax og upp komst um flutninginn var haft samband við byggingafulltrúa sveitarfélagsins sem staðfestir að húsið hafi verið tekið af grunni sínum og flutt burtu í heimildarleysi. Kærði fulltrúinn málið til lögreglu sem nú hefur það til umfjöllunar.

Litrík saga

Saga bústaðarins er talsvert litrík. Á viðkomandi lóð hvíldu verulegar skuldir og svo virðist sem Gamli Landsbankinn hafi látið þinglýsa tryggingarbréfi á fyrsta veðrétti á lóðinni án þess að búið væri að staðfesta virði hússins hjá Fasteignamati ríkisins.  

Þegar Stefán Skarphéðinsson sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu hugðist bjóða upp lóð hússins 3. júní síðastliðinn vegna áhvílandi skulda, sem komnar voru í vanskil, kom í ljós að húsið sem á lóðinni hafði staðið var horfið. Stóðu undirstöðurnar einar eftir. Var því fremur rýr eftirtekja þeirra sem hugsanlega vildu bjóða í eignina.

Samkvæmt heimildum Skessuhorns hvíldu tæplega 20 milljónir króna á lóðinni og átti Landsbankinn fyrsta veðrétt eins og áður segir.  Samkvæmt heimildum Skessuhorns var aflað tilskilinna leyfa á sínum tíma hjá Skorradalshreppi til að byggja húsið á umræddri lóð og teikningar af því lágu fyrir hjá sveitarfélaginu. Hins vegar var samkvæmt fasteignaskrá ekki búið að verðmeta húseignina og gefa því fasteigna- eða brunabótamat. Samt kemur fram í fasteignaskrá að 75 fermetra hús standi á lóðinni. 

Umrætt hús stendur nú á jörð í Lundarreykjadal í Borgarbyggð. Til að mega setja niður hús til bráðabirgða þarf svokallað stöðuleyfi og staðfesti forstöðumaður framkvæmdasviðs Borgarbyggðar að ekki hafi verið sótt um slíkt leyfi. Eigendur jarðarinnar sem um ræðir í Lundarreykjadal kváðust hins vegar í samtali við Skessuhorn hafa verið í góðri trú þegar þeir veittu “eiganda” hússins leyfi til að geyma húsið á sínu landi.

Í þessu máli virðist sem farið hafi verið á svig við ýmiss lög og reglugerðir með flutningi hússins af lóðinni. Fyrir það fyrsta er með öllu bannað að flytja fasteignir af lóðum án leyfis viðkomandi skipulagsyfirvalda. Þá er ekki hægt að flytja hluta af þinglýstum eignum burtu af lóðum nema þær séu án veðbanda. Í öllum tilfellum þarf að sækja um leyfi til flutnings húsa af þeirri stærðargráðu sem hér um ræðir, en það mun ekki hafa verið gert hvorki hjá lögreglu né skipulagsyfirvöldum.

Þá segir hjá Skessuhorni að því megi velta því fyrir sér hvernig standi á því að banki taki hátt í 20 milljóna króna veð í tæplega hálfs hektara kargaþýfi, jafnvel þótt í Skorradal sé.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »
Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GARÐSKÁLI GEYMSLUR GESTAHÚS
Garðskáli - geymslur - gestahús Vönduð hús ú...
Til sölu Ford Ekonline húsbíll ... 350 þús!!!:)
Til sölu Ford Econoline húsbíll árg. '90, sjálfsk. ek. 149 þús. sex cl. bensín l...
Glæsilegir meðferðabekkir frá USA
EarthLite bekkir frá USA. Bestu gæði. www.Rikki.is 561 9400...
Traust fyrirtæki óskar eftir íbúð á leigu
Óska eftir íbúð á leigu á svæði 109 eða 111. Þrjú eða fjögur herbergi. Að...
 
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Jobbtrygghet
Augl-/almannatengsl
JOBBTRYGGHET? UTFORDRENDE JOBB? ...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...