Grunaðir þjófar lausir úr gæslu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ákvað að óska ekki eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldsvist yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um ítrekuð þjófnaðarbrot. Mennirnir voru handteknir í síðustu viku og hafa verið í gæsluvarðhaldi og einangrun síðan.
Lögreglumenn sem voru við eftirlit veittu öðrum mannanna athygli síðastliðinn þriðjudag og óku að bíl sem hann stóð við. Þá lét maðurinn sig hverfa inn í hús en lögregla veitti flatskjársjónvarpi í kassa athygli í bílnum. Í ljós kom að flatskjársjónvarpinu hafði verið stolið í innbroti á verkstæði Ormsson í Síðumúla sem tilkynnt hafði verið um fyrr um morguninn. Jafnframt kom í ljós að í kerru sem verið hafði við bifreiðina var talsvert af munum úr því innbroti og úr innbroti í vélasvið Heklu að Klettagörðum sem einnig hafði verið tilkynnt um fyrr um morguninn.
Á vettvangi fannst mikið magn af ætluðu þýfi úr fleiri innbrotum sem komið hafa til kasta lögreglu. Þá fannst mikið magn ætlaðs þýfis á vettvangi sem eftir sé að bera kennsl á, en miðað við magn ætlaðs þýfis á vettvangi tengist það fjölda innbrota.
Báðir eiga mennirnir sakaferil að baki og þar á meðal í auðgunarbrotum. Lögregla hefur til rannsóknar fjölda þjófnaðarmála og beinist rannsókn m.a. að mönnunum tveimur. Brot mannanna geta varðað fangelsi allt að 6 árum. Hæstiréttur staðfesti fyrir helgi gæsluvarðhaldsúrskurð sem kveðinn var upp yfir mönnunum 15. júlí og féllst ennfremur á kröfu um að þeir sættu einangrun. Héraðsdómur og Hæstiréttur féllust á það með lögreglu að rökstuddur grunur beinist að mönnunum um þátt eða hlutdeild í auðgunarbrotum. Þá var fallist á kröfu lögreglu um að tryggt yrði að mönnunum yrði gert ókleift að hafa samband sín á milli og samræma skýrslur sínar.
Úrskurðurinn rennur út klukkan 16 og virðist sem rannsókn málanna hafi gengið hratt fyrir sig því lögregla ákvað að krefjast ekki áframhaldandi gæsluvarðhalds.
Bloggað um fréttina
-
Tryggvi Marteinsson 21. júlí 2009 - Innrásarvíkingar. -
Arnar Guðmundsson EG EFAST
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 4. september 2009, Innlent Gæsluvarðhald framlengt yfir grunuðum þjófum
- Fimmtudagur, 4. september 2008, Innlent Verða ekki úrskurðaðir í farbann
- Þriðjudagur, 1. september 2009, Innlent Innbrotsþjófar áfram í varðhaldi
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Innlent Innbrotsþjófar handteknir
- Fimmtudagur, 21. ágúst 2008, Innlent Innbrotsþjófar handteknir
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































