Standi vörð um félagsmiðstöðvar og frístundaheimili
Stjórn Félags fagfólks í frítímaþjónustu hefur sent sveitarstjórnum á Íslandi áskorun þess efnis að þær standi vörð um starfsemi félagsmiðstöðva og frístundaheimila fyrir börn og unglinga og tryggi um leið jöfn tækifæri til þátttöku í fjölbreyttu frítímastarfi.
Í ályktun stjórnar Félags fagfólks í frítímaþjónustu skorar hún á á sveitarstjórnir „að standa vörð um starfsemi félagsmiðstöðva og frístundaheimila fyrir börn og unglinga á þeim umbrota- og óvissutímum sem Íslendingar lifa nú og tryggja um leið jöfn tækifæri til þátttöku í fjölbreyttu frítímastarfi. Félagið varar við afleiðingum þess að skerða framlög til frítímastarfs barna og unglinga hjá sveitarfélögunum.“
Stjórn félagsins segir sveitarstjórnir langstærsta stuðningsaðila við frístundastarf barna og unglinga. „Á vegum sveitarfélaganna er komið til móts við þarfir ófélagsbundinnar æsku, sérstaklega þeirra barna og unglinga sem finna síður sína fjöl hjá íþróttafélögum eða frjálsum félagasamtökum. Þörfum barna og unglinga sem standa höllum fæti er nær eingöngu mætt í frítímaþjónustu sveitarfélaganna. Sú starfsemi er því kjarninn í öllu forvarnarstarfi á Íslandi. Öflugt frístundastarf stuðlar að auknum samskipta- og félagsþroska barna og unglinga og er lykilatriði þegar hlúð er að komandi kynslóðum sem munu bera uppbyggingu þjóðfélagsins í náinni og fjarlægri framtíð.“
Stjórn félagsins segir innlendar og erlendar rannsóknir sýna að þátttaka í skipulögðu félags- og tómstundastarfi undir handleiðslu hæfra leiðbeinenda dragi úr líkum á hvers kyns áhættuhegðun, s.s. áfengis- og vímuefnaneyslu og ofbeldi. „Ávinningur af því að skerða starfsemi þar sem börn og unglingar eru virkir þátttakendur er því enginn. Mikill ávinningur yrði hins vegar að því að styrkja slíka starfsemi.“
Félagið bendir jafnframt á að Ísland er aðili að Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og þann 16. mars sl. var samþykkt þingsályktunartillaga um lögfestingu sáttamálans á Íslandi. Samkvæmt 31. grein sáttmálans viðurkenna aðildarríkin rétt barns til tómstunda og til að stunda leiki og skemmtanir sem hæfa aldri þess. „Auk þessa skuldbinda aðildarríki sig til að virða og efla rétt barns til fullrar þátttöku og stuðla að viðeigandi og jöfnun tækifærum til tómstundaiðju.“
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 12. mars 2010, Innlent Áhyggjur af niðurskurði í tómstundum
- Miðvikudagur, 31. mars 2010, Innlent Standi vörð um tómstundastarf
- Fimmtudagur, 18. mars 2010, Innlent Íþróttafélög fá inni í Egilshöll
- Fimmtudagur, 18. mars 2010, Innlent Mest-húsið nýtt sem íþróttahús
- Mánudagur, 3. maí 2010, Innlent Kristín nýr formaður Rithöfundasambandsins
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































