„Bókhaldið er kannski dálítið snúið“
Eftir Bjarna Ólafsson - bjarni@mbl.is
Eitt af málunum fimm, sem þrotabú Samsonar, eignarhaldsfélag Björgólfsfeðga, hefur höfðað vegna viðskipta sem áttu sér stað áður en Samson fór í greiðslustöðvun, er gegn Björgólfi Guðmundssyni sjálfum. Í stefnu er þess krafist að rift verði með dómi gjöf til Björgólfs í formi greiðslu Samsonar á eftirstöðvum á skuldabréfi sem Björgólfur gaf út sem stofnframlag í minningarsjóð Margrétar Björgólfsdóttur, dóttur sinnar. Er þess krafist að Björgólfi verði gert að greiða þrotabúi Samson rúmlega 111 milljónir króna.
Forsögu málsins má rekja til þess að Björgólfur og eiginkona hans stofnuðu í ársbyrjun 2005 minningarsjóð um dóttur sína. Stofnfé sjóðsins var 500 milljónir króna og var það greitt með skuldabréfi sem Björgólfur gaf út til sjóðsins. Stjórn sjóðsins skipa auk Björgólfs, dóttir hans Bentína Björgólfsdóttir og Þórunn Guðmundsdóttir hæstaréttarlögmaður.
Samson greiddi eftirstöðvarnar
Hinn 22. febrúar voru eftirstöðvar skuldabréfsins 111.047.411 krónur og sama dag sendi Sigþór Sigmarsson, stjórnarformaður Samsonar, bréf til Ágústs H. Leóssonar, framkvæmdastjóra Samsonar. Þar segir: „Bókhaldið í kringum þetta er kannski dálítið snúið [...] orðið hefur að samkomulagi að Samson greiði eftirstöðvar af skuldabréfi sem BG gaf upprunalega út sem stofnframlag í Minningarsjóð Margrétar Björgólfsdóttur.“ Í samræmi við fyrirmæli stjórnarformannsins voru þennan sama dag seldar úr peningamarkaðssjóði Samsonar 120 milljónir króna og voru þær notaðar til að greiða skuldina og eftirstöðvarnar lagðar inn á reikning Samsonar.
Riftanleg gjöf
Þrotabú Samson telur að ráðstöfunin hafi verið gjafagerningur og því riftanleg samkvæmt gjaldþrotalögum, en heimilt er að rifta gjöf ef hún var afhent síðustu sex til tólf mánuðum áður en þrotamaður leitaði fyrst heimildar til greiðslustöðvunar.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 22. júlí 2009, Innlent Félagið MGM var selt á „óskiljanlegu“ verði
- Miðvikudagur, 22. júlí 2009, Innlent Vill milljarða af Björgólfsfeðgum
- Fimmtudagur, 9. júlí 2009, Innlent Dýrt fyrir ríkið að selja banka
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































