Ræddu hvorki fyrirvara né frestun

Steingrímur að fundi loknum ásamt Árna Þór Sigurðssyni
Steingrímur að fundi loknum ásamt Árna Þór Sigurðssyni Árni Sæberg

Fundi Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar með formönnum þeirra þingnefnda sem fjalla um Icesave-samkomulagið lauk nú fyrir stundu. Á leið sinni út sagði Steingrímur að á fundinum hefðu nefndarformenn tíundað stöðu vinnu sinnar ítarlega. Engin breyting væri á stöðunni.

Í fréttum Útvarps í kvöld kom fram að á fundinum yrði m.a. rætt um hugsanlega fyrirvara við samkomulagið þar sem meirihluti sé ekki fyrir því innan stjórnarflokkanna að veitt verði ríkisábyrgð vegna þess án fyrirvara.

„Ekki neitt sem ég myndi kalla fyrirvara, menn hafa bara verið að ræða þessa umgjörð sem Alþingi getur sett um afgreiðslu sína á málinu,“ sagði Steingrímur um þetta. Ekki var heldur rætt um frestun afgreiðslu málsins og gerir Steingrímur ráð fyrir að málið verði áfram í sama farvegi.

Steingrímur segir að nú sé málið í höndum fjárlaganefndar en utanríkisnefnd og efnahags- og skattanefnd hafa afgreitt málið hvað þær varðar.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert