Mikið um þjófnaði í Reykjavík
Tveir karlar á fertugsaldri voru handteknir í Reykjavík í gær eftir að fórum þeirra fundust munir sem þeir gátu ekki gert grein fyrir. Málin eru óskyld en annar mannanna hefur nú játað innbrot í miðborginni.
Karl um þrítugt var einnig handtekinn í Reykjavík í gær eftir að hann freistaði þess að komast með vörur úr stórmarkaði án þess að greiða fyrir þær. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafði maðurinn sett vörur í innkaupakerru sem hann var stöðvaður með fyrir utan verslunina.
Tvær unglingsstúlkur voru líka staðnar að hnupli í Smáralind í gær. Þær voru fluttar á lögreglustöð þaðan sem hringt var í forráðamenn þeirra.
Snemma í morgun voru síðan karl og kona á þrítugsaldri handtekin í Garðabæ eftir að í bíl þeirra fundust munir sem talið er að séu illa fengnir.
Nokkur innbrot voru einnig tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Brotist var inn í tvo bíla í Elliðaárdal og einn í Hafnarfirði en vegna þessa vill lögreglan ítreka að verðmæti séu ekki höfð í augsýn í ökutækjum.
Innbrotsþjófar voru líka á kreiki í miðborginni og stálu tölvu og bakpoka úr kjallaraíbúð. Gamall gítar og útidyramotta hurfu einnig frá leikskóla í vesturbæ borgarinnar og í austurborginni var veiðigræjum stolið úr geymslu verslunar- og þjónustuhúss.
Þá voru tölva, myndavél og áfengi tekið úr íbúð í Kópavogi og hljómflutningstækjum var stolið úr húsi í Mosfellsbæ. Verkfærataska var einnig tekin ófrjálsri hendi í miðborginni og í sama hverfi var bíl stolið síðdegis. Bíllinn fannst óskemmdur nokkru síðar en þjófurinn er ófundinn.
Karl um þrítugt var einnig handtekinn í Hlíðunum í gær en hann hafði brotið tvær rúður í fjölbýlishúsi. Maðurinn var fluttur á lögreglustöð en ekki er vitað hvað honum gekk til.
Rúður voru einnig brotnar hjá fyrirtæki í miðborginni í bíl í Breiðholti. Þá voru unnar skemmdir á tveimur bílum, öðrum í Grafarvogi en hinum í vesturbæ borgarinnar.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 22. janúar 2010, Innlent Handtekinn grunaður um innbrot
- Fimmtudagur, 8. apríl 2010, Innlent Innbrot kærð til lögreglu
- Miðvikudagur, 7. júlí 2010, Innlent Lögreglan hafði hendur í hári þjófa
- Miðvikudagur, 30. júlí 2008, Innlent Þjófnaðir og innbrot
- Fimmtudagur, 15. janúar 2009, Innlent Töluvert um þjófnaði í gær
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































