Kaupir 11% hlut HS Orku af Geysi

Geysir Green Energy
Geysir Green Energy

Geysir Green Energy og kanadíska jarðhitafyrirtækið Magma Energy Corporation (Magma) hafa gert með sér samkomulag um kaup Magma á tæplega 11% hlut í HS Orku af Geysi. Þá leggur Magma HS Orku til nýtt hlutafé.

Fram kemur í tilkynningu að jafnframt sé stefnt að samstarfi fyrirtækjanna um frekari þróun og nýtingu jarðvarma, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi.

„Til að hrinda þeim áformum í framkvæmd leggur Magma HS Orku til umtalsvert nýtt hlutafé. Fjárfestingar Magma á Íslandi nema ríflega fimm milljörðum króna og marka viss tímamót, enda er um að ræða fyrstu umtalsverðu fjárfestingu erlends aðila í íslensku atvinnulífi eftir hrun bankanna.

Kaup Magma Energy á hlut í HS Orku koma í kjölfar samkomulags Reykjanesbæjar og Geysis Green Energy um breytt eignarhald á HS Orku og HS Veitum sem nýlega hefur verið gengið frá. Með því samkomulagi eignaðist Geysir nær allan hlut Reykjanesbæjar í HS Orku en lét á móti hlut sinn í HS Veitum. Jafnframt keypti Reykjanesbær allar auðlindir út úr HS Orku en leigir félaginu nýtingarréttinn, og tryggir þannig að samfélagið njóti áfram góðs af auðlindunum.

Magma leggur Geysi lið við fjármögnun þessara viðskipta og selur Geysir Magma 10,8% af 66% hlut sínum í fyrirtækinu fyrir rúma þrjá milljarða króna. Þá mun Magma einnig leggja HS Orku til tvo milljarða króna í nýju hlutafé, í hlutafjáraukningu sem er fyrirhuguð á næstunni, til að tryggja félaginu frekara fjármagn til framkvæmda. Eignarhlutur Magma í HS Orku mun verða 16% eftir fyrirhugaða hlutafjáraukningu og eignarhlutur Geysis 52%,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert