Litháíska þingið styður aðild

Litháar styðja aðild Íslendinga að Evrópusambandinu.
Litháar styðja aðild Íslendinga að Evrópusambandinu. Reuters

Litháíska þingið samþykkti í dag samhljóða yfirlýsingu þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu og önnur aðildarríki ESB hvött til að gera slíkt hið sama.

Í ályktun þingsins er þess sérstaklega minnst að Ísland skyldi hafa verið fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Litháen. Hvetur þingið til þess að undirbúningur aðildarviðræðna hefjist fljótt og að aðildarviðræður hefjist í byrjun árs 2010. Þá lýsa Litháar fullum vilja til að deila reynslu sinni af aðildarviðræðum við ESB með Íslendingum.

Utanríkisráðherra Litháen, Vygaudas Ušackas, er væntanlegur til Íslands á laugardag. Hann mun eiga fundi með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra og Árna Þór Sigurðssyni, formanni utanríkismálanefndar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert