Með hemil á stjórnendum
Eftir Önund Pál Ragnarsson - onundur@mbl.is
Fjármálafyrirtæki í eigu ríkisins munu eftir sem áður þurfa að birta fjárhagsupplýsingar sínar opinberlega í lok hvers ársfjórðungs, samkvæmt drögum að eigendastefnu ríkisins í fjármálafyrirtækjum, sem unnin hafa verið í fjármálaráðuneytinu.
Þetta eru sömu reglur og gilda um fyrirtæki sem skráð eru á markaði. Segir í drögunum að með þessu verði best tryggt að opinber fjármálafyrirtæki verði eins gagnsæ og fyrirtæki sem skráð eru á almennum verðbréfamarkaði.
Í drögunum er jafnframt lagt bann við svonefndum starfandi stjórnarformönnum, í samræmi við frumvarp til breytingar á hlutafélagalögum, sem nú er til meðferðar á Alþingi. Gert er ráð fyrir að hin nýja ríkisstofnun, Bankasýsla ríkisins, kjósi stjórnirnar á hluthafafundum.
„Ákveðin hætta er á því að ríkið verði óvirkur eigandi sem leitt getur til þess að stjórnendur fyrirtækjanna fari að stýra þeim eftir öðrum markmiðum en eigandans,“ segir í drögunum.
Skilið á milli eiganda og eignar
Rík áhersla er einnig lögð á að skilja pólitísk afskipti frá daglegri starfsemi bankanna. Þannig skuli stjórn og starfsfólk Bankasýslu ríkisins hvorki taka þátt í daglegum rekstri bankanna né hafa áhrif á ákvarðanir þeirra. Skýrt skipulag skuli vera á samskiptum bankasýslunnar við bankana, svo staða hennar verði trúverðug.Bann er lagt við því að stjórnir, bankaráð og stjórnendur fjármálafyrirtækja hafi beint samband við fjármálaráðherra eða ráðuneyti hans vegna atriða sem varða einstaka viðskiptavini þeirra.
Um laun stjórnenda segir að kjararáð ákveði laun bankastjóra og forstjóra fjármálafyrirtækja sem ríkið á meira en helmingshlut í.
„Opinber fjármálafyrirtæki skulu tileinka sér hófsemi þegar kemur að launakjörum.“ Laun eigi að standast samanburð á þeim sviðum sem fyrirtækin starfi á, en séu ekki leiðandi. Þá skuli búa til framgangskerfi fyrir starfsmenn innan fyrirtækjanna.
- Bankasýslan verði fjarri daglegum rekstri banka
- Bankar hafi ekki beint samband við ráðherra
- Bankarnir tileinki sér hófsemi í launakjörum
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 24. júlí 2009, Innlent Laun forstjóra ríkisbanka ekki samkeppnishæf
- Miðvikudagur, 2. september 2009, Innlent Ríkið setur sér eigendastefnu
- Föstudagur, 18. desember 2009, Innlent Endurreisn bankanna lokið
- Sunnudagur, 20. desember 2009, Innlent Banna launahækkun þingmanna
- Laugardagur, 20. júní 2009, Innlent Stofna Bankasýslu ríkisins
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































