95 fyrirtæki í þrot í júní

23 fyrirtæki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð voru tekin til gjaldþrotaskipta …
23 fyrirtæki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð voru tekin til gjaldþrotaskipta í júní 2009. mbl.is/Golli

Í júní 2009 voru 95 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 92 fyrirtæki í júní 2008, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þetta jafngildir rúmlega 3% fjölgun milli ára.

Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot eða 23 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 20 í heild- og smásöluverslun.

Fyrstu 6 mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 508 en fyrstu sex mánuði ársins 2008 voru 393 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem jafngildir rúmlega 29% aukningu milli ára.

Vefur Hagstofunnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert