ESB-umsókninni vísað áfram

Össur Skarphéðinsson ásamt Carli Bildt í síðustu viku.
Össur Skarphéðinsson ásamt Carli Bildt í síðustu viku. Reuters

Utanríkisráðherrar aðildarríkja ESB, sem hittust á fundi í Brussel í morgun, hafa samþykkt að vísa umsókn Íslands til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í erlendum fjölmiðlum, m.a. á fréttavef Bloomberg.

Kl. 13 að íslenskum tíma hefst blaðamannafundur þar sem formlega verður greint frá niðurstöðu utanríkisráðherranna.

Mikil undirbúningsvinna mun nú væntanlega hefjast. Stækkunarskrifstofa ESB, undir forystu Ollis Rehn, setur saman litla deild til að taka saman skýrslu um hversu vel Ísland er í stakk búið til aðildar, hvort við fullnægjum þeim skilyrðum sem nýjum aðildarríkjum eru sett og hvaða vandamál geta komið upp í viðræðum. Fullbúin skýrsla verður svo lögð fyrir leiðtogafund sambandsins, þar sem einnig verður óskað eftir umboði til samningsviðræðna. Íslensk stjórnvöld vonast til að þetta hafist fyrir leiðtogafundinn í desember, í lok formennskumisseris Svía.

Fram hefur komið að Ísland muni ekki geta stytt sér leið í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, að sögn Svía sem nú eru í forsæti í sambandinu. Þetta sagði Carl Bildt utanríkisráðherra Svíþjóðar fyrir fund utanríkisráðherra ESB í Brussel í morgun. Hann sagði ljóst að leiðin væri styttri fyrir Ísland en ýmsa aðra.

„Það er engin hraðbraut fyrir Ísland, en augljóslega er brautin styttri fyrir Ísland því þeir eru hluti af innri markaðnum og Schengen svæðinu,“ sagði Bildt. Hann sagði að tekið yrði eitt skref í einu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert