Segja fréttaflutning rangan og villandi

Landsbankinn stækka

Landsbankinn hag / Haraldur Guðjónsson

Eigendur Samson ehf., feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að fréttaflutningur RÚV af félaginu sé bæði rangur og villandi. Segja þeir að svo virðist sem heimildamaður RÚV þekki ekki eins vel til mála og gefið sé í skyn í fréttunum.

„Vegna rangs og villandi fréttaflutnings í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi, sunnudaginn 26. júlí, vilja fyrrverandi eigendur Samson ehf benda á eftirfarandi atriði:

1. Samson ehf. er ekki með nein óuppgerð lán hjá Landsbanka Íslands eins og skilja mátti af frétt Ríkissjónvarpsins.

2. Samson Global Holding, eignarhaldsfélag sem átti yfir 35% hlut í Straumi fjárfestingabanka hf., skuldaði Landsbanka Ísland ekki neitt í október 2008. Félagið greiddi allar eldri skuldir við Landsbankann árið 2007.

3. Landsbanki Íslands lánaði ekki Hansa til kaupa á knattspyrnufélaginu West Ham United eins og skilja mátti af umfjöllun Ríkissjónvarpsins.

4. Ekki er útistandandi sambankalán frá Landsbankanum og Glitni upp á 70 milljarða króna hjá Actavis eins og Ríkissjónvarpið heldur fram í frétt sinni. Öllu lægra lán var þó til fyrr á árum en var greitt að fullu árið 2007.

5. Það er rétt að Landsbanki Íslands lánaði Novator Pharma 200 milljónir evra við yfirtöku á Actavis árið 2007 eins og fram hefur komið í fréttum. Nam það lán um 3,5% af heildarfjármögnun þeirra viðskipta.

6. Ríkissjónvarpið vísar í frétt sinni til 30. greinar laga um fjármálafyrirtæki um lán banka til venslaðra aðila á borð við aðaleigendur. Í fréttinni er þess ekki getið að lagagreinin fjallar um bein útlán til venslaðra aðila en hún á ekki við um yfirtökur eldri lána og ábyrgða.

7. Eignarhaldsfélagið Grettir, sem var félag í eigu Björgólfs Guðmundssonar, tók aldrei lán í Landsbanka Íslands á meðan félagið var í eigu Björgólfs, eins og skilja mátti á frétt Ríkissjónvarpsins. Hið rétta varðandi skuldastöðu Grettis og tengdra félaga kom skýrt fram í yfirlýsingu sem Björgólfur Guðmundsson sendi frá sér 4. maí sl. Þar segir m.a:
„Mikilvægt er að leggja áherslu á, vegna skuldbindinga ofangreindra félaga (þe Grettis og Eimskips) við Landsbanka Íslands, að upphaflega lánaði Landsbankinn Gretti til að kaupa hlutabréf í Eimskipi og Icelandic þegar Grettir var í meirihlutaeigu annarra en Björgólfs.

Eftir að Björgólfur varð aðaleigandi Grettis gekkst hann í persónulegar ábyrgðir umfram skyldu sína til að treysta veð bankans og því falla nú allar skuldir Grettis hann. Ekki var stofnað til þessara skuldbindinga Grettis við bankann á meðan Björgólfur var meirihlutaeigandi í félaginu. Þessi viðskipti voru ekki íþyngjandi fyrir lausafjárstöðu bankans á árinu 2008.

Fyrirgreiðsla til eigenda banka og fjármálafyrirtækja er háð ákveðnum reglum. Lánanefnd gerir tillögu til bankaráðs, um afgreiðslu málsins. Við þá afgreiðslu víkja þeir sem hagsmuna eiga að gæta og bankaráð afgreiðir lánið. Ytri endurskoðendur hafa eftirlit með því að fyrirgreiðsla við þessa aðila sé í samræmi við kjör annarra sambærilegra aðila.

Upplýsingar um þessar lánveitingar eru veittar endurskoðunarnefnd bankans og Fjármálaeftirlitinu og gerð er ítarleg grein fyrir þeim í öllum árs- og árshlutareikningum bankans. Allar ákvarðanir sem tengdust lánum til fyrirtækja Björgólfs voru í fullu samræmi við almennar reglur um útlán banka til eigenda og stjórnarmanna í bönkum og fjármálafyrirtækjum. Björgólfur vék sæti úr bankaráði Landsbankans þegar þessi mál voru til meðferðar í ráðinu.”

8. Magnús Þorsteinsson seldi hlut sinn í Samson ehf í maí 2005 og hefur ekki verið venslaður Landsbankanum frá þeim tíma. Því er hrein firra að Ríkissjónvarpið tilgreini hann í umfjöllun sinni um áhrif 30. greinar laga um fjármálafyrirtæki á starfsemi og útlán Landsbankans.

Af þessu má ljóst vera að frétt Ríkissjónvarpsins er í mörgum meginatriðum röng og villandi.

Ríkisútvarpið vísar í heimildarmann sem segir að umtalsverður hluti Icesave innlána Landsbankans hafi farið í lánveitingar til fyrrum eigenda bankans. Þetta er rangt. Stærsti hluti lána Landsbankans sem fyrrum eigendur Samson bera ábyrgð á er eldri en Icesave innlánin og virðist heimildamaður Ríkissjónvarpsins því ekki þekkja eins vel til mála og gefið er í skyn. Rétt er að fram komi að Fjármálaeftirlitið hefur alltaf haft allar upplýsingar undir höndum varðandi lánveitingar Landsbankans til venslaðra aðila.

Fyrrverandi eigendur Samson ehf. hafa í þessum efnum ekkert að fela og treysta því að hið rétta muni líta dagsins ljós. Engu að síður telja þeir rétt að vekja athygli á augljósum rangfærslum í fréttaflutningi Ríkissjónvarpsins," að því er segir í yfirlýsingu Björgólfsfeðga.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Kynningartilboð á garðhúsum!!
Kofar og hús eru með kynningartilboð á garhúsum. Kynntu þér málið á www.kofarog...
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
Fallegur Nuddbekkur Topp - Gæði Verð : 62.000 Sterkur - Ódýr- Fallegur.5 ára ábyrgð
Ferðanuddbekkur www.isholf.is/eirikurs/nuddbord.html s. 8626194. Falleg - Sterk ...
BÍLAR ÓSKAST Á SKRÁ
Bílalíf bílasala ... í bílum erum við sterkir! Skráðu bílinn þinn frítt hjá bila...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...