Spurt um jarðskjálftaspádóm
Nokkuð hefur verið hringt til Almannavarna og eins Veðurstofunnar undanfarið vegna spádóms um öflugan jarðskjálfta á Reykjanesi í kvöld. Hringt var í síðustu viku og eitthvað um helgina, en ekki í dag.
Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, sagði fólk hafa hringt og spurt hvort sérstakur viðbúnaður sé viðhafður vegna þessa. Hann sagði ekki hægt að segja það.
Forveri Víðis í starfi hélt vel utan um tilkynningar þeirra sem sögðu fyrir óorðna atburði eða hafði dreymt fyrir þeim, en nokkuð er um að slíkt sé tilkynnt. „Það hefur alla tíð mikið verið haft samband við Almannavarnir með svona spádóma en við eigum erfitt með að tengja þá við atburði sem orðið hafa. Það er allavega ekki mjög algengt,“ sagði Víðir.
Bergþóra S. Þorbjarnardóttir, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, sagði að dálítið hafi verið haft samband við Veðurstofuna vegna jarðskjálftaspádómsins um síðustu helgi og fyrir síðustu helgi. Enginn hafði hringt í morgun. Bergþóra tók ekki á móti þeim hringingum. En eru meiri líkur á stórum jarðskjálfta í dag en aðra daga?
„Það er ekkert sem bendir til þess,“ sagði Bergþóra. Hún sagði að jarðskjálftar á Reykjanesi fari yfirleitt ekki yfir sex stig að stærð. Hún sagði engar líkur á að þar geti orðið upptök jarðskjálfta af stærðargráðunni átta. Til þess sé bergið of veikt.
Tímaritið Vikan greindi frá því á forsíðu nýlega að Lára Ólafsdóttir sjáandi hafi sagt að stór jarðskjálfti muni ríða yfir 27. júlí. Upptök skjálftans áttu samkvæmt spásögninni að verða á Krýsuvíkursvæðinu kl. 23.15 og skjálftinn að verða mjög öflugur.
Bloggað um fréttina
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir Sjáandin eitthvað farin að sjá illa -
Benedikta E Hvað segja dýrin ? - Sagan af henni MÍSKU - ... -
Marinó Már Marinósson Ég spái -
Halldór Egill Guðnason Heimskuleg umfjöllun. -
Ía Jóhannsdóttir Spennan magnast með hverri mínútu. -
Vantrú Það gerist (ekki) í kvöld -
Jenný Anna Baldursdóttir Ábyrgð sjáenda er mikil - úje -
Ingvar Valgeirsson Þar sem ég er fyrir norðan... -
Ástþór Ingi Pétursson Jarðskjálfti væntanlegur 31. júlí! -
Axel Jóhann Hallgrímsson Í kvöld kl. 23:15 gerist það góðir hálsar. -
Jón Finnbogason Ekkert um Björgólf? -
Emil Hannes Valgeirsson 1 á móti 35 þúsund að það verði öflugur skjálfti -
-
Þórarinn Þ Gíslason TÆPUR KLUKKUTÍMI Í JARÐSKJÁLFTA "SPÁKONUNNAR " OG EF AÐ RÆTIST ... -
Guðsteinn Haukur Barkarson Blindur sjáandi -
fingurbjorg Bullshit! -
Ásdís Sigurðardóttir Jarðskjálftaspáin hennar Láru. -
Bergur Thorberg Byrjaður að pakka -
Jón Ingi Cæsarsson Er gúrkutíð ? -
Konráð Ragnarsson Afsakið, vitlaus tímasetning,hann verður 23.16 ekki 23.15 eins og ég ... -
Markús frá Djúpalæk Skrýtin tilfinning
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 1. nóvember 2009, Innlent Jarðskjálftar undan Reykjanesi
- Mánudagur, 29. mars 2010, Innlent Gosórói er aftur að vaxa
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Telja líklegt að Icesave-samningar náist
- Þriðjudagur, 4. nóvember 2008, Innlent Snarpur skjálfti við Grindavík
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































