15 ára keyrði ölvaður
15 ára piltur var tekinn fyrir ölvunarakstur í Reykjavík um helgina. Hann hafði tekið bíl fjölskyldumeðlims í óleyfi og farið á rúntinn um bæinn í félagi við fjóra vini sína. Ökuferðinni lauk við fjölfarna umferðargötu þar sem pilturinn missti stjórn á bílnum og ók honum utan í grindverk.
Meiðsli ökumanns og farþega voru minniháttar en ljóst þykir að betur fór en á horfðist. Líkt og áður sagði reyndist ökumaðurinn vera ölvaður og að sjálfsögðu án ökuréttinda.
Þá stálu tvær unglingsstúlkur bifreið í höfuðborginni á sunnudagskvöld. Þær náðu að keyra nokkurn spöl áður en þær voru stöðvaðar í austurborginni. Stúlkurnar voru á bílastæði þegar lögregla hafði hendur í hári þeirra og reyndu að komast undan á hlaupum. Sú tilraun mistókst og hringt var í forráðamenn þeirra.
Þá bar mikið á hraðakstri á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ökufantarnir voru gripnir víðs vegar í umdæminu og í alvarlegustu tilvikunum óku menn á 40-50 km hraða umfram leyfilegan hámarkshraða. Jafnan áttu ungir ökumenn í hlut eða piltar undir tvítugu.
Í einhverjum tilvikum var um að ræða ökumenn sem óku með tengivagna við bifreiðar sínar. Einn slíkur var tekinn við borgarmörkin á um 110 km hraða en hann mátti með réttu ekki aka hraðar en á 70 km hraða.
Þá voru sjö teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Af þeim voru sex karlar á aldrinum 15-26 ára.
Tveir voru teknir fyrir að aka bifreið undir áhrifum frá vímuefnum um helgina. Sá þriðji var svo gripinn í gærkvöld. 18 ára drengur hafði tekið bíl traustataki í Hafnafirði og sest við stýrið undir áhrifum fíkniefna. Bílferðin tók þó skjótan endi í grasbrekku utan vegar. Ökumaður og farþegar hlupu af vettvangi en ökumaðurinn var handtekinn skömmu síðar.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 12. október 2009, Innlent Á fermingaraldri á rúntinum
- Þriðjudagur, 27. október 2009, Innlent Fékk akstursbann á öðrum degi bílprófs
- Þriðjudagur, 6. janúar 2009, Innlent Tók afskiptum lögreglunnar illa
- Þriðjudagur, 6. júlí 2010, Innlent 15 ára próflaus og fullur á vespu
- Þriðjudagur, 26. ágúst 2008, Innlent Sextán réttindalausir ökumenn stöðvaðir
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































