Lokuðu skrifstofum

Lásasmiður var mættur við umhverfisráðuneytið í morgun og starfsfólk ráðuneytisins …
Lásasmiður var mættur við umhverfisráðuneytið í morgun og starfsfólk ráðuneytisins komst ekki til vinnu. mbl.is/Júlíus

Aðgerðahópur Saving Iceland kveðst hafa lokað í nótt skrifstofum fyrirtækja og stofnana sem samtökin telja að hafi „gerst hafa meðsek um stórfell náttúruspjöll“. Um er að ræða m.a. iðnaðarráðuneyti, umhverfisráðuneyti, Ístak, Jarðboranir, HRV Hönnun og skrifstofuskúr ÍAV.

Í tilkynningu samtakanna segir m.a.:

„Fyrirtækin og stofnanirnar sem urðu fyrir þessum lokunum hafa öll sýnt fram á einbeittan brotavilja gagnvart íslenskri náttúru og svífast einskis í leit sinni að auðsóttum gróða og hagkvæmum samningum, jafnvel við fyrirtæki með svívirðilega forsögu. Því þótti löngu tímabært að loka þeim áður en frekari eyðilegging mun eiga sér stað.

Fyrirtækin og stofnanirnar sem um ræðir eru eftirfarandi: Iðnaðarráðuneytið og Umhverfisráðuneytið sem hafa opnað flóðgáttir stóriðju hérlendis, Ístak sem sér um allflestar jarðraskanir sem framkvæma þarf til að gera prufuboranir og byggingu stóriðjumannvirkjanna, Jarðboranir sem er eigandi boranna sem notaðir eru til orkuleitunar víðs vegar um landið og HRV Hönnun sem sér um umhverfismat á þeim landssvæðum sem ráðist er á.

Einnig var skrifstofuskúr á einu af byggingarsvæðum ÍAV í Reykjavík lokað, en þeir byggja um þessar mundir álverið í Helguvík.“

Skrifstofum var lokað í nótt.
Skrifstofum var lokað í nótt. Saving Iceland
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert