Ora innkallar kjötbollur í brúnni sósu

Niðursuðuverksmiðjan Ora hefur ákveðið að innkalla kjötbollur í brúnni sósu í 850 gr. dósum vegna hugsanlegs framleiðslugalla. Samkvæmt tilkynningu hefur komið upp framleiðslugalli í einni af framleiðslulotum vörunnar.

Í samræmi við gæða- og öryggisstefnu Ora nær innköllunin þó til allra 850 gr dósa af vörunni, óháð framleiðslulotu. Strikamerkið sem auðkennir innkallaðar dósir er 5690519020412, að því er segir í tilkynningu.

„Þeir sem hafa í fórum sínu stærri dósina af Ora kjötbollum í brúnni sósu (850 gr), eru beðnir um að skila henni til næstu verslunar, við fyrsta hentuga tækifæri. Ekki er skilyrði að vörunni sé skilað þangað sem hún var upphaflega keypt. Innkallaðar dósir fást bættar í öllum verslunum sem selja Ora."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert