„Mögulega gengið of langt“

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður allsherjarnefndar Alþingis.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður allsherjarnefndar Alþingis. Mbl.is/Ragnar Axelsson

Spurning hvort gengið hafi verið of langt þegar þess var krafist að lögregla skæri niður um 10%. Niðurskurðurinn mun kosta sársaukafulla skerðingu á grunnþjónustu. Allsherjarnefnd óskar þess að koma að vinnu dómsmálaráðuneytis þegar grunnþjónusta lögreglu verður skilgreind.

Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Stefán Eiríksson, Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna og fulltrúar dómsmálaráðuneytisins sátu fund með allherjarnefnd Alþingis í dag. Var farið yfir stöðu mála í löggæslu og nýjar hugmyndir dómsmálaráðherra um hagræðingu innan lögreglunnar kynntar.

„Það er ljóst að lögreglan á gríðarlega erfitt með að ná þessum 10% niðurskurði,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður allsherjarnefndar. „Það er umhugsunarefni hvort ekki hafi verið gengið of langt þegar þess var krafist að lögreglan skæri niður um 10% og hvort ekki hefði verið betra að halda sig við 7%, eins heilbrigðis-, mennta- og félagssvið.“

Hún segir það blasa við að ef lögreglan þurfi að halda sig við 10% niðurskurð kosti það sársaukafulla skerðingu á grunnþjónustu lögreglunnar. „Það er nokkuð sem enginn vill sjá og þess vegna sé ég fulla ástæðu til þess að taka þetta mál upp innan þingflokks Samfylkingarinnar,“ segir Steinunn.

Dómsmálaráðherra hefur skipað í nefnd sem ætlað er að skilgreina grunnþjónustu lögreglunnar. Segir Steinunn að mikilvægt sé að Alþingi komi að þeirri vinnu: „Við óskuðum þess vegna eftir því að taka þátt í þessari vinnu. Í mínum huga er löggæsla ein af grunnþjónustum samfélagsins og því mikilvægt að Alþingi komi beint að því að skilgreina grunnþjónustu lögreglunnar.“

Nefndin hefur ekki lokið umfjöllun sinni um málið og verður það tekið upp aftur á næstu fundum, þá jafnvel með fleiri aðilum en komu á fund hennar í dag.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert