Innlent
| mbl
| 31.7.2009
| 21:57
| Uppfært
22:20
Rífandi góð stemning um land allt
Mikið stuð er á Ísafirði þar sem menn eru mættir til þess að spila mýrarbolta. Mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson
Mýrarboltamót verður haldið á Ísafirði um helgina og stefnir allt í metþátttöku, hafa hátt í sex hundruð manns skráð sig nú þegar sem er helmingsaukning frá því í fyrra. Segja mótshaldarar að fólk komi alls staðar að af landinu og einnig frá útlöndum. Vinsældir mótsins hafa farið sívaxandi og er það mál manna að sá sem einu sinni hefur farið á mótið mæti þangað aftur og þá með vini sína með sér. Hámark mótsins verður lokahófið á sunnudagskvöld og reiknað er með þangað mæti um 650 manns í dúndurstuði.
Á Sauðárkróki verða um tíu þúsund manns um helgina á unglingalandsmóti UMFÍ og hefur þáttaka aldrei verið meiri. Er bærinn stútfullur af kátu fólki og hefur allt farið einstaklega vel fram. Segja mótshaldarar ljóst að mótin séu að stimpla sig vel inn og fólk mæti aftur og aftur. Þetta sé fjölskkylduskemmtun þar sem allir fái eitthvað fyrir sinn snúð. Kalt var í veðri framan af degi en síðan hlýnaði og nú er þar hið ágætasta veður. Allir séu kátir og hressir og ljóst sé að þetta verði frábær helgi í alla staði.
Á Siglufirði er fullur bær af fólki vegna síldarævintýris og stemningin gríðargóð að sögn mótshaldara. Meirihluti gesta sé fjölskyldufólk en það sé einmitt markhópurinn. Allt hefur gengið samkvæmt óskum í dag og það hefur ræst vel úr veðri. Dansleikir eru á dagskránni í kvöld og er búist við því að þeir verði fjölmennir og gleðin verði við völd.
Mótshaldarar á Neistaflugi í Neskaupsstað eru kátir með sitt og segja stemninguna frábæra í bænum. Neskaupsstað var skipt í fernt vegna hátíðarinnar og voru grillveislur í öllum hverfum í kvöld. Þaðan voru svo skrúðgöngur inn í miðbæ þar sem hátíðin var hátíðlega sett í rjómablíðu. Göturnar séu fullar af glöðu fólki og allir finni eitthvað við sitt hæfi. Erfitt væri að giska á mannfjölda en þegar hámarki væri náð í brekkusöngi á sunnudagskvöld mætti búast við að þar yrðu um 2500 manns, sem væri c.a 1500 meira en íbúafjöldi bæjarins.
Í Vestmannaeyjum verður stærsta þjóðhátíð sem haldin hefur verið í eyjunni að mati mótshaldara, sem búast við að um tíu þúsund manns verði í brekkunni á sunnudagskvöld, þegar hámarki hátíðarinnar er náð. Eindæma blíða er í Eyjum og er henni spáð alla helgina. Eru gestir búnir að spranga um léttklæddir og skemmta sér hið besta. Óvenjumikið er um hvítu hústjöldin í ár og eru þau yfir 350 sem bendi til þess að æ fleira af fullorðna fólkinu mæti í dalinn. Stærsti hluti gesta sé þó ungt fólk sem komið er til þess að gera sér glaðan dag. Aðstandendur segja alla viðstadda í hátíðarskapi og allt gangi samkvæmt óskum.
„Hér var ansi kalt í morgun, svo hætti að rigna, svo fór að hlýna og síðan sólin að skína,“segir Margrét Blöndal, aðalskipuleggjandi hátíðarinnar Ein með öllu- og allt undir, á Akureyri. Hún segir marga hafa tekið þátt í kirkjutröppuhlaupi sem fram fór í dag og í kvöld hafi kirkjan svo verið sneysafull á óskalagatónleikum. Tónunum hafi svo verið varpað yfir nágrennið með stórum hátölurum og hafi það hlotið góðar undirtektir. Hún segir gleðina skína af hverju andliti og nú séu margir á leið á hlöðuball í Dynheimum. Á Akureyri hefur allt gengið samkvæmt óskum og eru aðstandendur mjög ánægðir með daginn. Erfitt sé að meta hversu margir koma vegna hátíðarinnar en talsvert sé af tjöldum á tjaldstæðum bæjarins. Þema hátíðarinnar er Abba og verður hámarkinu náð á morgun. Segir Margrét mikinn áhuga vera á þemanu og fjölmargir klæði sig í takt við það, t.d bankastarfsmenn Íslandsbanka, starfsfólk veitingastaða og sömuleiðis verslana. Rífandi góð stemning ríki í bænum og þarna sé gott að vera.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin


































