Óku á ofsahraða frá Goldfinger
Aðalmeðferð yfir þremur einstaklingum sem grunaðir eru um að hafa kveikt í húsi á Kleppsvegi hefur verið frestað fram yfir hádegi. Enn á eftir að taka skýrslur yfir nokkrum vitnum auk þess sem lögmenn flytja ræður sínar. Óvíst er þó hvort takist að klára málið í dag. Hinir grunuðu neita allir sök.
Meðal þess sem komið hefur fram við aðalmeðferðina er að sakborningarnir, Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, Jón Kristinn Ásgeirsson og Karl Halldór Hafsteinsson, óku frá nektarstaðnum Goldfinger í Kópavogi á ofsahraða að Kleppsvegi. Vitni að akstrinum hafði samband við lögreglu og tilkynnti hann.
Mennirnir voru á ferð snemma morguns 6. júní sl. Þegar þeir komu að Kleppsvegi hófu þeir að lemja á hurð eins hússins. Lögreglu barst tilkynning frá húsráðanda þar sem hún var beðin um að fjarlægja mennina. Skömmu síðar barst lögreglu tilkynning frá nágranna í nærliggjandi húsi sem óskaði eftir aðstoð lögreglu og slökkviliðs enda hefðu mennirnir kveikt í útidyrahurð á húsinu.
Mönnunum þremur bar ekki saman um hver tilgangur ferðarinnar hafi verið. Ríkharð sagðist hafa átt sökótt við húsráðanda vegna hótanna hans í garð sín. Jón Kristinn sagðist hafa ætlað að nálgast upplýsingar hjá manninum um annan, Krumma. Jón Kristinn tók jafnframt fram að hann hafi ekkert átt sökótt við húsráðanda, sem er góður vinur föður Jóns. Þriðji maðurinn sagðist lítið sem ekkert hafa vitað um tilgang fararinnar.
Mennirnir neita allir fyrir að hafa kveikt í húsinu og vitni hafa ekki getað borið um hver það hafi verið sem hellti úr bensínbrúsa á útidyrahurðina og kveikti í. Allir eru þeir þó sammála um að þeim hafi brugðið mikið þegar eldurinn kviknaði og hafi allir ætlað að hjálpa til við að slökkva eldinn.
Húsráðandi hljóp út á nærfötunum
Komið hefur fram að húsráðandi braut út úr húsinu á nærbuxunum einum fata með slökkvitæki í höndunum. Þegar hann reyndi að nota tækið reyndist það óvirkt. Jón Kristinn rétti honum þá annað slökkvitæki sem hann fann í nærliggjandi garði. Það reyndist jafnframt óvirkt. Eldurinn magnaðist á sama tíma gríðarlega.
Lögregla kom stuttu síðar á vettvang og handtók mennina, sem hafa verið í gæsluvarðhaldi síðan.
Meðal vitna í málinu er systir Jóns Kristins sem var með í för umræddan morgun. Hún er jafnframt unnusta eins sakborninga. Í framburði hennar kom lítið annað fram en að mönnunum öllum hefði verið mjög brugðið þegar eldurinn kviknaði.
Öllum sakborningum ber saman um að mikil óregla hafi verið á þeim á þessum tíma. Ef þeir voru ekki undir áhrifum áfengis og vímuefna þá aðeins vímuefna.


































