Stjórnvöld halda í vonina
Eftir Jón Pétur Jónsson - jonpetur@mbl.is„Þetta er væntanlega og vonandi ákveðin töf sem við getum lifað með,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra spurð um frestun á samþykkt efnahagsáætlunar í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS).
„Vonandi verður sem minnst töf á þessu, þannig að óvissan vari ekki lengi. Ef þetta snýst aðeins um fáeinar vikur þá ætti það svo sem ekki að hafa nein teljandi áhrif, svo fremi sem að þá sé ljóst að endurskoðunin geti farið fram án hindrana. Síðast í ágúst eða um mánaðarmótin,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
Jóhanna og Steingrímur boðuðu til blaðamannafundar í dag til að ræða frestunina. Þau ítrekuðu að íslensk stjórnvöld hafi uppfyllt öll skilyrði fyrir endurskoðun efnahagsáætlunarinnar.
Þrátt fyrir það hefur framkvæmdastjórn AGS ákveðið að taka ekki fyrir endurskoðun efnahagsáætlunarinnar áður en hún fer í tveggja vikna sumarleyfi 7. ágúst.
„Þess vegna er það auðvitað mjög bagalegt og okkur mikil vonbrigði að þetta hafi verið niðurstaða sjóðsins,“ segir Jóhanna og bætir við að þetta muni vonandi ekki setja íslenskt efnahagslíf í uppnám. Gjaldeyrisforði landsins sé góður.
„Við vonum það, trúum því og treystum að þetta hafi ekki áhrif á lánsfjármat ríkisins, sem væri afskaplega bagalegt ef það myndi gerast. Eða ef þetta hefði áhrif á stýrivaxtalækkun, en ákvörðun um stýrivexti verður í næsta mánuði,“ segir Jóhanna.
Stjórnvöld vonast til að AGS geti tekið málefni Íslands til endurskoðunar í lok ágúst eða í byrjun september, en þá á að berast annar hluti tveggja milljarða dala láns sjóðsins og fyrsti fjórðungur láns Norðurlandanna, sem alls nemur 2,5 milljörðum dala.
Jóhanna bendir á að AGS hafi staðreynt að fjármögnun efnahagsáætlunarinnar með greiðslum frá utanaðkomandi aðilum, m.a. Norðurlöndunum, hafi ekki verið tryggð.
|
|
Frestun á samþykkt efnahagsáætlunar í samstarfi við AGS. |
Bloggað um fréttina
-
-
Andri Geir Arinbjarnarson Pólitísk töf -
Sóldís Fjóla Karlsdóttir VON....!!!!! -
Sigurbjörn Svavarsson Þvingun Jóhönnu og Steingríms. -
Bergur Thorberg Þetta er VONLAUST! -
Jóhann Elíasson En getum við ekki lifað ÁN AGS?????? -
Kolbrún Hilmars Ef vonin ein er eftir -
Ásdís Sigurðardóttir Ég rakst á þetta svar á bloggi Ólínu Þorvarðar.... -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Icesave hagsmunir RÍKRA Íslendinga -
Birgitta Jónsdóttir Afsakið þinghlé í boði framkvæmdavaldsins -
Ólína Þorvarðardóttir Þjóð í öngum -
Auðun Gíslason Rekum IMF/AGS.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 30. júlí 2009, Innlent Vonast eftir láni í lok ágúst
- Föstudagur, 31. júlí 2009, Innlent Icesave tefur endurskoðun AGS
- Föstudagur, 31. júlí 2009, Innlent Íslendingar kenni Hollandi og Bretlandi um allt slæmt
- Þriðjudagur, 15. desember 2009, Innlent Icesave-samningur forsenda fyrir endurskoðun hjá AGS
- Föstudagur, 9. október 2009, Innlent Alvarlegar afleiðingar af frekari töfum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































