Leggja til hærra frítekjumark og einfaldara kerfi
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is
Með breytingum sem lagt er til að verði gerðar á almannatryggingakerfinu myndi draga verulega úr ofgreiðslum til bótaþega Tryggingastofnunar. Breytingarnar miða annars vegar að mikilli og róttækri einföldun á kerfinu og hins vegar að skerðingarfyrirkomulaginu, aðallega með hækkun frítekjumarks. Þetta segir Stefán Ólafsson, prófessor og formaður verkefnahóps félags- og tryggingamálaráðherra, sem hefur unnið að breytingum á almannatryggingakerfinu síðan 2007.
Á þriðjudag kom í ljós að þrír milljarðar króna höfðu verið ofgreiddir til bótaþega og munu fimm þúsund manns þurfa að endurgreiða bætur. Níu þúsund eiga von á endurgreiðslu vegna vangreiddra bóta.
Að sögn Stefáns mun einföldun kerfisins draga úr hættu á röngum greiðslum. Þá vill verkefnisstjórnin sjá frítekjumarkið, sem nú er 8.000 krónur, þrisvar til fjórum sinnum hærra, að það hækki strax í 25-30 þúsund krónur á mánuði.
Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra telur óraunhæft að hægt sé að hækka frítekjumarkið næstu misserin. Verið sé að horfa á enn harðari niðurskurðarkröfur á ríkið á næstu árum.
Árni segir að unnið verði að heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins í samráði við hagsmunaaðila. Því verði þó ekki viðkomið innan 100 daga áætlunar ríkisstjórnarinnar eins og stefnt hafi verið að.
Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag.
Bloggað um fréttina
-
Þórkatla Snæbjörnsdóttir Hverjir eru skotmörk Jóhönnu Sig . á Íslandi í dag? -
Bjarni Líndal Gestsson Tveggja ára vinna til einskis. -
Þórarinn Þ Gíslason ORÐRÉTT: ÓRAUHÆFT AÐ HÆKKA FRÍTEKJUMARKIÐ OG SVO, VERIÐ ER AÐ ...
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 29. október 2009, Innlent Almannatryggingakerfið stokkað upp
- Föstudagur, 19. desember 2008, Innlent Frítekjumarkið áfram 100 þúsund krónur
- Föstudagur, 12. desember 2008, Innlent Frítekjumark örorkulífeyrisþega framlengt
- Þriðjudagur, 17. mars 2009, Innlent Breytingin getur ekki beðið
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Tími fyrir móttöku sjúklinga styttist
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































