Nauðgun á Kirkjubæjarklaustri

Kirkjubæjarklaustur.
Kirkjubæjarklaustur. www.mats.is

Lögreglunni á Hvolsvelli var í dag tilkynnt um nauðgun sem hefði átt sér stað á Kirkjubæjarklaustri nú í nótt, undir morgun. Var einn grunaður um verknaðinn og hefur hann verið handtekinn. Málið er í rannsókn.

Fórnarlambið hefur ekki náð tvítugsaldri og er hinn meinti gerandi á líkum aldri. Í kjölfar nauðgunarinnar leitaði stúlkan til neyðarmóttöku nauðgana.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert