Mikil þátttaka í starfi kallar á uppbyggingu
Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is
Mikil þátttaka í ferðum Ferðafélags Íslands í sumar og metaðsókn að skálum félagsins kallar á uppbyggingu á þeim svæðum þar sem félagið hefur helgað sér land í tímans rás. Byggja þarf nýja skála og stækka þá sem fyrir eru, bæta tjaldsvæði og hreinlætisaðstöðu og merkja gönguleiðir.
Þetta segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍ, sem telur að aldrei hafi fleiri tekið þátt í starfi félagsins en einmitt í ár. Lauslega áætlað hafi til að mynda um tíu þúsund manns gengið Laugaveginn sem sé tvö til þrjú þúsund göngugörpum fleira en í meðalári.
„Vegna aðstæðna í efnahagslífinu bjuggumst við í FÍ, eins og aðrir, við því að ferðalög hér innanlands ykjust og að starfsemi félagsins efldist. Hvort tveggja hefur gengið eftir. Vinahópar og sumarklúbbar til dæmis, sem að öðru jöfnu hefðu líklega farið utan, hafa þetta árið haldið sig hér heima: gengið á fjöll eða farið um óbyggðir. Þetta er skemmtileg þróun sem ég tel allar líkur á að haldist áfram. Og þessu verðum við að bregðast við með nauðsynlegum framkvæmdum sem við munum að sjálfsögðu forgangsraða,“ segir Páll Guðmundsson.
Laugavegurinn er vinsælasta gönguleið landsins. Á þeirri leið á FÍ fimm skála, það er í Landmannalaugum, Hrafntinnuskeri, við Álftavatn, í Hvanngili, á Emstrum og í Þórsmörk. Aðrar gönguslóðir eru þó að koma sífellt sterkar inn, svo sem Hornstrandir, Kjalvegur hinn forni og leiðin um Jarlhettuslóðir við sunnanverðan Langjökul sem opnaðist fyrir fáum árum með brú yfir Farið við Hagavatn.Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. júní 2010, Innlent Metaðsókn að Hólaskóla
- Fimmtudagur, 25. desember 2008, Innlent Metaðsókn í Fríkirkjunni
- Laugardagur, 19. júní 2010, Innlent Búist við metaðsókn á Akureyri
- Sunnudagur, 21. mars 2010, Innlent Ferðafélagið fylgist með
- Miðvikudagur, 14. apríl 2010, Innlent Bíða átekta í Langadal
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































