Staðfestir heildarmyndina um Icesave
Álit Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands staðfestir þá heildarmynd sem greinargerðir Seðlabankans og fjármálaráðuneytisins um Icesave-skuldbindingarnar. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
„Þetta mat er ágætis innlegg. Það véfengir ekki niðurstöðurnar í aðalatriðum, sem er að við getum staðið undir skuldbindingunum. Það er í góðu jafnvægi við okkar mat á stöðunni þótt í einstökum tilvikum þyki mat Seðlabanka of bjartsýnt eða of svartsýnt,“ segir Steingrímur. Þar vísar hann meðal annars til þess að Hagfræðistofnun telur hagvaxtarspá Seðlabankans of bjartsýna þegar til lengri tíma er litið, en að gera megi ráð fyrir meiri hagvexti á allra næstu árum.
Steingrímur segir ekki ósamræmi í þessu mati annars vegar og Seðlabanka og ráðuneytisins hins vegar, heldur sé verið að benda á og draga fram óvissuþætti, enda sé hægt að setja fram margvísleg fráviksdæmi. Ekki komi fram bein gagnrýni á mat hinna, en bent á að skoða hefði mátt fleiri þætti.
Hagfræðistofnun segir mestu hættuna af mögulegum afleiðingum skuldabyrða vegna Icesave vera fólksflutninga af landi brott. Steingrímur segir þó að ekki sé verið að spá fólksflótta vegna Icesave, það sé bara einn af mörgum óvissuþáttum næstu ára, eins og fiskverð, orkuverð og aðgengi að alþjóðlegum lánamörkuðum.
Með áliti Hagfræðistofnunar má segja að mat helstu þungavigtaraðila í hagspárgerð séu komin fram, þó þetta nýjasta innlegg fjalli í raun aðeins um greinargerðir Seðlabanka og fjármálaráðuneytisins. Steingrímur kveðst telja að eins vel hafi verið gert í þeim efnum eins og aðstæður séu til, ekki sé mörgum aðilum eftir til að dreifa til að meta áhrif Icesave-skuldabyrðina á ríkisfjárhaginn.
„Auðvitað má lengi gera betur, en ég held að niðurstaðan yrði svipuð hjá öllum aðilum því það er mikil óvissa um þetta. Við hljótum þó alltaf að vilja hafa trú á framtíð landsins. Í þessu mati er hvergi að finna heimsendaspár eða hrakspár, enda finnst mér að menn eigi að fara varlega með slíkt. Það getur varla verið okkar keppikefli að útmála það hvorki fyrir sjálfum okkur né umheiminum að allt sé algjörlega vonlaust hjá okkur. Ég hef aldrei fengið botn í þá umræðu enda tel ég að ekki sé innistæða fyrir henni.“
Bloggað um fréttina
-
Brynja Dögg Ívarsdóttir Dæmir þjóðina til fátæktar, og fólksflótta -
Bjarni Kjartansson Reykás í öðru veldi. -
Jóhann Elíasson UMSKIPTINGURINN HEFUR TALAÐ!!!!!!!!!!!! -
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson Heildarmyndin. -
Margrét Sigurðardóttir Traustvekjandi markaðssetning ríkisstjórnarinnar erlendis -
Haraldur Haraldsson Staðfestir heildarmyndina um Icesave/segir Steimgrímur Fjármálaráherra=180* -
Velvakandi Nei, fólksflótti er ekki hreinn óvissuþáttur -
Guðrún María Óskarsdóttir. Þessi bullukollagangur hefur náð endamörkum Steingrímur. -
Bjarni Líndal Gestsson Álit Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 4. ágúst 2009, Innlent Mesta hættan fólksflótti
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Þriðjudagur, 5. janúar 2010, Innlent S&P gefur sér staðfestingu á Icesave
- Fimmtudagur, 24. desember 2009, Innlent Mat IFS ekki áfellisdómur
- Laugardagur, 10. október 2009, Innlent Er að senda VG skilaboð
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































