Garðurinn Skrúður í Dýrafirði 100 ára

Skrúður í Dýrafirði.
Skrúður í Dýrafirði.

Garðurinn Skrúður í Dýrafirði á 100 ára afmæli þann 7. ágúst n.k. þ.e.á föstudag en afmælisins verður minnst sérstaklega daginn eftir, laugardaginn 8. ágúst, að því er fram kemur í tilkynningu.

Þar segir einnig að sérstaða Skrúðs umfram aðra garða sé ekki síst tengd tilurð og tilgangi hans en í upphafi var hann hugsaður sem kennslugarður fyrir nemendur á Núpi. Stofnandi Skrúðs, séra Sigtryggur Guðlaugsson, tíundaði mikilvægi ræktunar garðjurta til fæðubótar og heilbrigðis. Segja má að sú hugsun hafi á þeim tíma verið langt á undan samtímanum.

Í garðinum eru kjálkabein af einni stærstu steypireyði sem hefur verið fönguð (árið 1892)  við Ísland. Unnið verður að því að koma beinunum til varanlegrar varðveislu og verða yngri bein sett upp í staðinn. 

Í tilkynningunni segir ennfremur að Ísland státi ekki af mörgum almenningsgörðum frá þessum tíma, hvorki stórum né íburðarmiklum. Því sé mikilvægt að þeim fáu görðum sem til eru sé vel sinnt, þeir njóti verðugrar umhirðu og sögu þeirra sé gerð skil og henni haldið á lofti.

Reynslan sýnii, bæði hérlendis og erlendis, að garðar eru eitt mesta aðdráttarafl  ferðamanna. Einstök staðsetning Skrúðs, í náttúru snarbrattra fjallshlíða Dýrafjarðar, komi mörgum á óvart. Það hafi líka verið ætlun stofnandans á sínum tíma að sanna það hvað hægt væri að rækta í hrjóstrugum jarðvegi við þessar aðstæður. Árangurinn veki svo sannarlega aðdáun og forvitni margra.

Þá segir að um leið auki Skrúður á fjölbreytni þeirra valmöguleika sem ferðamenn eiga kost á að skoða og upplifa á Vestfjörðum og sé því afar mikilvæg viðbót við aðra áhugaverða áfangastaði og valkosti svæðisins.

 
Eins og áður segir verður efnt til sérstakrar hátíðar í garðinum laugardaginn 8. ágúst. kl. 14-17. Hátíðarhöldin verði fjölbreytt og í anda þeirra hugmynda og gilda sem garðurinn Skrúður hefur staðið fyrir í 100 ár og allir séu velkomnir.

Meira um sögu Skrúðar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert