Meintir fjársvikarar frjálsir
Fjórir menn, sem handteknir voru í tengslum við rannsókn á tugmilljóna króna fjársvikamáli í júlí, eru lausir úr haldi. Tveimur mannanna var sleppt í gær og tveimur í dag. Enginn er í haldi vegna rannsóknar málsins en að sögn lögreglu stendur rannsókn enn yfir.
Um miðjan júlí barst efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra kæra á hendur fimm mönnum vegna skjalafals og fjársvika. Mennirnir voru kærðir fyrir að hafa sölsað undir sig tvö hlutafélög með fölsuðum undirskriftum og í framhaldi af því falsað ýmis önnur gögn í þeim tilgangi að svíkja út fé frá lánastofnunum, m.a. lán hjá Íbúðalánasjóði vegna tveggja fasteigna.
Fjórir menn voru handteknir vegna rannsóknar málsins. Sá fyrsti var handtekinn 22. júlí en þrír í kjölfar þess. Allir voru þeir úrskurðaðir í gæsluvarðhald og einangrun. Þrír mannanna kærðu úrskurði héraðsdóms til hæstaréttar , sem staðfesti úrskurðina.
Fimmti maðurinn var ekki handtekinn. Málið er að sögn lögreglu umfangsmikið, með umtalsverða fjármuni. Þá virðist það vera þaulskipulagt þar sem fjölmargar ríkisstofnanir voru blekktar og fjármunum náð með sviksamri háttsemi.
Líkur hafa verið leiddar að því að mennirnir hafi aðeins verið peð í umfangsmeiri glæpastarfsemi en ekkert hefur fengist staðfest í þeim efnum.
Mönnunum fjórum sem handteknir voru, hefur nú verið sleppt. Tveir voru látnir lausir í gær og tveir í dag. Ekki fengust upplýsingar um hvort mennirnir hefðu játað brot sín. Lögregla segir að rannsókn málsins standi enn yfir og því sé ekki hægt að svara efnisatriðum er hana varðar.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason þÚ ERT ÖRUGGUR MEÐ AFKOMUNA EF AÐ ÞÚ : STELUR, ... -
Tryggvi Marteinsson 5. ágúst 2009 - Almenningur borgar. -
Kolbrún Hilmars Þykir þetta fréttnæmt? -
Margrét Sigurðardóttir Fjársvikarar allir frjálsir á Íslandi
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 28. júlí 2009, Innlent Tveir handteknir vegna fjársvika
- Miðvikudagur, 10. desember 2008, Innlent Lögreglan segir rannsókn á amfetamínverksmiðju ganga vel
- Miðvikudagur, 22. október 2008, Innlent Fimm í gæslu vegna árásar á lögreglu
- Þriðjudagur, 18. maí 2010, Innlent Hollendingarnir lausir úr haldi
- Laugardagur, 30. janúar 2010, Innlent Fjórmenningar lausir úr haldi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































