Gunnuhversvegur ekki matsskyldur

stækka

Mynd ferlir.is

Lagning nýs ferðamannavegar um hverasvæðið við Gunnuhver á Reykjanesi, er ekki háð mati á umhverfisáhrifum, samkvæmt ákvörðun Skipulagsstofnunar.

HS Orka hf, Ferðamálasamtök Suðurnesja, Grindavíkurbær og Reykjanesbær, áforma að leggja nýjan veg um hverasvæðið við Gunnuhver í stað vegarkafla sem hefur verið lokað vegna aukinnar
hveravirkni á svæðinu. Vegurinn verður innan svæðis á Náttúruminjaskrá, um 1,5 kílómetra langur frá Reykjanesvitavegi, sunnan við Gráa lónið og austur fyrir hverasvæðið við Gunnuhver.

Skipulagsstofnun leitaði álits Grindavíkurbæjar, Reykjanesbæjar, Fornleifaverndar ríkisins, Ferðamálastofu, Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja og Umhverfisstofnunar. Umsagnir bárust frá Grindavíkurbæ, Reykjanesbæ, Fornleifavernd ríkisins, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og Umhverfisstofnun. Umsögn barst ekki frá Ferðamálastofu.

Tilgangur framkvæmdanna er annars vegar að gera nýja akstursleið um hverasvæðið við Gunnuhver og hins vegar að bæta öryggi og aðstöðu ferðamanna og útivistarfólks sem skoðar hverasvæðið á Reykjanesi.

Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Fornleifavernd ríkisins, Heilbrigðiseftirlit
Suðurnesja og Umhverfisstofnun telja ekki líklegt að framkvæmdin muni hafa umtalsverð umhverfisáhrif.

Áhrif á náttúruminjar

Í umsögn Umhverfisstofnunar kemur fram að fyrirhugað vegstæði sé innan svæðis á náttúruminjaskrá (Reykjanes, Eldvörp og Hafnaberg), sem einkennist af stórbrotinni jarðfræði, fjölskrúðugum jarðhitagróðri og sérstæðri volgri sjávartjörn. Fyrirhugað framkvæmdasvæði sé í jaðri iðnaðarsvæðis á Reykjanesi þar sem ummerki mannsins séu mikil og fyrirhugað vegstæði sé að stærstum hluta á röskuðu svæði. Ekki séu líkur á að vegalagningin hafi mikil áhrif á fuglalíf.

Áhrif á fornleifar

Í umsögn Fornleifaverndar ríkisins kemur fram að rétt sé að fornleifar séu sunnan Gráa lónsins, en í gögnum sé staðsetning þeirra ekki sýnd á loftmynd og afstaða þeirra til legu fyrirhugaðs vegar sé ekki ljós. Hins vegar sé í frummatsskýrslu vegna stækkunar Reykjanesvirkjunar sýndur slóði sem liggi frá Reykjanesvitavegi og yfir á núverandi varnargarð við Gráa lónið, en einungis á þessum hluta fyrirhugaðs ferðamannavegar liggi fornleifar nærri veginum. Fjórar fornleifar séu í 40 -70 m fjarlægð frá slóðanum: garðlag og þrjár tóftir. Ef framkvæmdin feli í sér að byggja upp gamla slóðann ætti fornleifum ekki að stafa hætta af henni. Engu að síður sé mikilvægt að verktakar verði upplýstir um staðsetningu fornleifanna til að koma í veg fyrir að þær raskist af vangá meðan á framkvæmdum standi.

Umhverfismats ekki þörf

Skipulagsstofnun telur ljóst að helstu neikvæðu áhrif fyrirhugaðra framkvæmda verði vegna röskunar jarðmyndana og gróðurs á um 250 metra kafla vegarins. Þá telur stofnunin að framkvæmdin muni bæta aðgengi og öryggi ferðamanna á hverasvæðinu.

Það er niðurstaða Skipulagsstofnunar að gerð nýs vegar um hverasvæðið við Gunnuhver á Reykjanesi sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Framkvæmdirnar eru háðar framkvæmdaleyfi Grindavíkurbæjar og Reykjanesbæjar og telur Skipulagsstofnun mikilvægt að verktakar verði upplýstir um staðsetningu fornleifa á framkvæmdasvæðinu til að koma í veg fyrir að þær raskist af vangá meðan á framkvæmdum stendur.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 8. september 2009.

Vefur Skipulagsstofnunar

Fróðleikur um Gunnuhver

PDF-skrá Gunnuhversvegur - Ákvörðun Skipulagsstofnunar
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Ford Ekonline húsbíll ... 350 þús!!!:)
Til sölu Ford Econoline húsbíll árg. '90, sjálfsk. ek. 149 þús. sex cl. bensín l...
58 fermetrar
Til leigu húsnæði á annari hæð í Dugguvogi 6 (Fossberg) Eitt rými með litlum el...
TÖKUM GARÐINN Í GEGN!KLIPPINGAR, TRJÁFEL
Tökum garðinn í gegn! Klippingar, trjáfellingar, beða- hre...
Ljósavélar í báta og skip 10 -1000 kw
Útvegum allar gerðir af ljósavélum, Cummins, Perkins, fl,. teg Stamford , leory ...
 
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...