Mikilvægt að vanda tímasetningu stóriðjuframkvæmda

Í skýrslunni kemur m.a. fram að mikilvægt sé að meta raunkostnað af stóriðjuframkvæmdum. stækka

Í skýrslunni kemur m.a. fram að mikilvægt sé að meta raunkostnað af stóriðjuframkvæmdum. mbl.is/Ómar

Flest bendir til að þjóðhagslega hagkvæmt verði að ráðast í stóriðjuframkvæmdir á Íslandi á næstu árum, en tímasetningar slíkra framkvæmda skipta miklu máli hvað varðar þjóhagslegan ávinning. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.

Iðnaðarráðuneytið fól Hagfræðistofnun HÍ á síðasta ári að skrifa skýrslu um hagrænt mat á áhrifum stóriðjuframkvæmda á íslenskt efnahagslíf undir yfirskrifitinni „Áhrif stóriðjuframkvæmda á íslenskt efnahagslíf“.

Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu að með verkefninu sé brugðist við ítrekuðum ábendingum og athugasemdum varðandi áhrif stóriðjuframkvæmda í skýrslum OECD um íslensk efnahagsmál á undanförnum árum.

Helstu niðurstöður skýrslunnar eru eftirfarandi:

  1. Sökum þess hve hlutfallslegt umfang stóriðjuframkvæmda er mikið í hagkerfinu og þeirrar staðreyndar að hér hefur lengstum verið því sem næst fullt atvinnustig skipta tímasetningar slíkra framkvæmda miklu máli hvað varðar þjóðhagslegan ávinning. Sé ráðist í slíkar framkvæmdir á þensluskeiði getur þjóðhagslegur ábati orðið neikvæður eða lítill en mikill sé framkvæmt á þeim tímum þegar slaki er í hagkerfinu.

  2. Auðveldari aðgangur að erlendu vinnuafli nú en áður gerir það að verkum að áhrif framkvæmda á vinnumarkað eru þjóðhagslega minni en oft áður. Fyrir vikið er auðveldara að rýma til fyrir þessum framkvæmdum á vinnumarkaði með því að flytja inn erlent vinnuafl. Á móti kemur að sveiflur í heildarfjölda vinnandi á markaði verða meiri vegna stóriðjuframkvæmda nú en áður sökum þessa.

  3. Þrátt fyrir að hlutfallslegt umfang stóriðju í hagkerfinu hafi vaxið mikið á síðustu áratugum er það enn svo að sveiflujafnandi áhrif stóriðju í rekstri á hagsveiflur eru mikil. Aukin notkun áhættuvarna álfyrirtækja vegna sveiflna í álverði gerir það einnig að verkum að hingað til hafa sveiflujafnandi áhrif greinarinnar verið vanmetin.

  4. Flest bendir til að þjóðhagslega hagkvæmt verði að ráðast í stóriðjuframkvæmdir á næstu árum. Ástæðurnar eru þær að útlit er fyrir slaka í hagkerfinu á þessu tímabili auk þess sem ætla má að slíkar framkvæmdir muni hafa jákvæð áhrif á íslenskan vinnumarkað. Vegna þessa slaka er trúlegt að ruðningsáhrif slíkra framkvæmda verði minni en ella. Eigi að síður er nauðsynlegt að gaumgæfa vandlega þau áhrif sem fjárfestingar í stóriðju og orkuverum geta haft á gengi íslensku krónunnar á fjárfestingartímanum.

  5. Mikilvægt er að meta raunkostnað af stóriðjuframkvæmdum. Slíkt verður ekki gert nema að í slíkum kostnaðarútreikningum sé litið til efnahagslegs virðis þess lands og umhverfis sem nýtt er til rafmagns- og álframleiðslu. Einnig þarf að taka tillit til áhættu í kostnaðarútreikningum. Í þeim útreikningum sem hér fara á eftir er hvorki horft til umhverfisverðmæta né áhættu.

  6. Almennt er gerð sú krafa til opinberra framkvæmda að áhætta þeirra sé minni en einkaframkvæmda. Í einkafyrirtækjum geta einstakir hluthafar selt eign sína og komið sér þannig undan áhættu. Sökum þess hve opinberir aðilar eiga stóran hluta í orkufyrirtækjum landsins má færa fyrir því rök að draga beri úr áhættu almennings af rekstrinum. Ein leið er að auka hlut einkaaðila í orkuframleiðslu og með tilliti til stöðugleika væri heppilegt að erlendir aðilar kæmu í auknum mæli að orkuframleiðslu og sölu. Á móti væri hægt að gera kröfu um að innlendir aðilar ættu hluta í þeim stóriðjuverum sem hér verða reist.

  7. Hvað varðar langtímanýtingu orkuauðlinda þjóðarinnar skiptir miklu að skilgreina réttindi eigenda þeirra auðlinda og jarðnæðis sem hér um ræðir. Samkvæmt lögum frá vorinu 2008 um orkuauðlindir er gert ráð fyrir að hægt sé að leigja nýtingu þeirra. Til að tryggja þjóðhagslega hagkvæmni nýtingarinnar þarf að tryggja að leigutíminn sé sem lengstur og að möguleikar á því að endurskilgreina nýtingarmöguleikana séu til staðar.
PDF-skrá Áhrif stóriðjuframkvæmda á íslenskt efnahagslíf.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Ford Ekonline húsbíll ... 350 þús!!!:)
Til sölu Ford Econoline húsbíll árg. '90, sjálfsk. ek. 149 þús. sex cl. bensín l...
58 fermetrar
Til leigu húsnæði á annari hæð í Dugguvogi 6 (Fossberg) Eitt rými með litlum el...
TÖKUM GARÐINN Í GEGN!KLIPPINGAR, TRJÁFEL
Tökum garðinn í gegn! Klippingar, trjáfellingar, beða- hre...
Ljósavélar í báta og skip 10 -1000 kw
Útvegum allar gerðir af ljósavélum, Cummins, Perkins, fl,. teg Stamford , leory ...
 
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...