Þingvallanefnd skipuð á morgun

Nýrrar Þingvallanefndar bíður meðal annars það verkefni að taka ákvörðun um uppbyggingu í þjóðgarðinum í ... stækka

Nýrrar Þingvallanefndar bíður meðal annars það verkefni að taka ákvörðun um uppbyggingu í þjóðgarðinum í kjölfar bruna Hótels Valhallar. mbl.is/Júlíus

Ný Þingvallanefnd verður kjörin á Alþingi á morgun. Sex af sjö núverandi nefndarmönnum eru hættir þingmennsku. Þá er fyrirhugað að kjósa sjö fulltrúa í nýtt bankaráð Seðlabankans á þingfundi á morgun.

Alþingi kemur saman til fundar á ný síðdegis á morgun eftir rúmlega hálfsmánaðar hlé. Að loknum óundirbúnum fyrrispurnum tekur við hrina kosninga í nefndir og ráð.

Fyrst verða kosnir sjö menn og jafnmargir varamenn í bankaráð Seðlabanka Íslands til fyrsta þings eftir næstu almennar alþingiskosningar.

Þingvallanefnd skipuð

Þá verður loks skipuð ný Þingvallanefnd. Kjörnir verða sjö alþingismenn og jafnmargir til vara í nefndina. Þingvallanefnd fer með yfirstjórn þjóðgarðsins, fyrir hönd Alþingis. Nefndina skipa í dag alþingismennirnir, Björn Bjarnason formaður, Össur Skarphéðinsson varaformaður, Arnbjörg Sveinsdóttir, Kjartan Ólafsson, Lúðvík Bergvinsson, Bjarni Harðarson og Kolbrún Halldórsdóttir. Aðeins Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra situr enn á þingi. Nefndarinnar bíður meðal annars að fjalla um uppbyggingu á Þingvöllum í kjölfar bruna Hótels Valhallar 10. júlí sl.

Skipað í kjörstjórnir

Á þingfundi á morgun verður ennfremur skipað í landskjörstjórn og yfirkjörstjórnir kjördæmanna sex. Fimm menn og jafnmargir varamenn verða kjörnir í hverja kjörstjórn fyrir sig.

Loks verða kjörnir fimm menn  og jafnmargir til vara í nefnd um erlenda fjárfestingu.

Icesave ekki á dagskrá

Þrjú þingmál eru á dagskrá þessa fyrsta þingfundar eftir hlé. Stefnt er að lögfestingu breytinga á lögum um eiturefni og hættuleg efni og breytingu laga um meðhöndlun úrgangs. Þá kemur frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra um breytingu á ýmsum lögum vegna tilfærslu verkefna innan Stjórnarráðs Íslands til annarrar umræðu. Ríkisábyrgð vegna Icesave samninga við Breta og Hollendinga er ekki á dagskrá þingfundar á morgun.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Rúta
Rúta Iveco 20 farþega til sölu. Nýskráð 11/07 ekin 105.000 km. Upplýsingar í ...
Mitsubishi Galant (ES
Mitsubishi Galant (ES) 2001 árgerð Ekinn ca 11000 mílur (176þús km) Slagrými ...
Landskiki óskast
Óska eftir 2-20 ha landskika við sjó,á eða vatn með leyfi fyrir 2 heilsárshús í ...
Chesterfield sófasett til sölu!
Vel með farið 10 ára gamalt Chesterfield sófasett 3+1+1 til sölu. Uppl í síma 86...
 
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...