Afstaða stjórnarandstöðu óbreytt
eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is
Algjör óvissa er enn um afdrif frumvarps ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrð vegna Icesave-samninganna, sem fjárlaganefnd hefur nú haft til umfjöllunar um nokkurt skeið. Vinnufundur í nefndinni í gær varð ekki til að breyta afstöðu þeirra sem mestar efasemdir hafa.
Þingmenn sem rætt var við í gær voru flestir á því að ekki væri meirihluti fyrir því á Alþingi að samþykkja ríkisábyrgðina nema með ströngum fyrirvörum. Töluvert skorti hins vegar upp á að þeir fyrirvarar, sem stjórnarflokkarnir hafi lagt til, gangi nógu langt. Því séu litlar líkur á því að samstaða náist um þetta mál miðað við núverandi stöðu.
Þá virðist ýmislegt benda til þess að andstaða meðal þingmanna Vinstri grænna við Icesave-samningana og frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð hafi frekar aukist en hitt.
Fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi, sem sátu vinnufund fjárlaganefndar í gær, sögðu að afstaða þeirra til þessa máls hefði ekki breyst eftir fundinn. Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, sagði þó að nokkuð hefði skýrst hvaða hugmyndir væru uppi varðandi fyrirvara við frumvarpið. Ljóst væri þó að hugmyndir ríkisstjórnarflokkanna gengju ekki nógu langt.Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist ekki sjá lausn í sjónmáli sem tryggði málinu meirihluta á Alþingi. Þá sagði Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, að hann teldi að málið í heild væri á villigötum. Hreinlegast væri að tilkynna Bretum og Hollendingum að það væri ekki meirihluti fyrir ríkisábyrgðinni á Alþingi.
Bloggað um fréttina
-
Margrét Sigurðardóttir Skrýmslin vakna -
Jón Ingi Cæsarsson Ætla að vera á móti. -
Magnús Helgi Björgvinsson Og enn heldur stjórnarandstaðan áfram að bulla! -
Andri Geir Arinbjarnarson Alþingi: Að vinna með bundið fyrir augun -
Óðinn Þórisson Icesave og ríkisstjórnin
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 8. desember 2009, Innlent Ásmundur Einar sagði já
- Föstudagur, 17. júlí 2009, Innlent Frestun Icesave slæmur kostur
- Þriðjudagur, 8. desember 2009, Innlent Meirihluti samþykkti Icesave
- Laugardagur, 12. desember 2009, Innlent Hafna að vinna lögfræðiálit á Icesave-frumvarpi
- Fimmtudagur, 17. desember 2009, Innlent 70% vilja hafna Icesave
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































