Brot á veiðilöggjöf
Landhelgisgæslan vísaði togaranum Sólbaki EA til hafnar á Akureyri snemma í morgun vegna fiskveiðibrots. Skipstjórinn var staðinn að ólöglegum veiðum norðvestur af landinu í gær að sögn Gæslunnar. Yfirmenn togarans verða teknir til skýrslutöku hjá lögreglunni seinna í dag.
Þá var báti vístað til hafnar í Ólafsvík í gær þar sem hann var við ólöglegar handfæraveiðar á Breiðafirði í gær.
Lögreglan hefur tekið skýrsla af skipstjórum og lagt hald á afla, gögn og búnað.
Varðskip stóð Sólbak að meintum ólöglegum togveiðum í hólfi á Vestfjarðamiðum þar sem áskilið er að hafa svokallaða smáfiskaskilju eða ákveðna lágmarskmöskvastærð. Um hádegi í gær kom varðskipið að skipinu og voru eftirlitsmenn sendir um borð í togarann til að kanna veiðarfæri og gögn skipsins.
Við skoðun eftirlitsmanna varðskipsins á veiðarfærum togarans kom í ljós að skipið var ekki búið svokallaðri smáfiskaskilju eða hafði þá lágmarksmöskvastærð sem áskilin er á þessu svæði. Meðalmöskvastærð trollpokans var undir þeirri lágmarksstærð sem áskilin er á svæðinu sé ekki notuð smáfiskaskilja. Var skipinu vísað til hafnar þar sem málið verður tekið fyrir. Tók lögreglan á móti skipinu þegar það lagði að bryggju á Akureyri kl. 5:30 í morgun.
Handfærabáturinn var staðinn að meintum ólöglegum handfæraveiðum innan bannsvæðis suður af Látrabjargi. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-Líf kom að bátnum og sást greinilega að báturinn hafði veiðarfæri sín í sjó.
Skipstjóra bátsins var tilkynnt að bátnum yrði vísað til hafnar þar sem mál hans yrði tekið fyrir. Sigldi báturinn til hafnar í Ólafsvík þar sem lögreglan tók á móti honum um kl. 18 í gær.
Yfirmenn skipanna verða teknir til skýrslutöku í dag innan embætta sýslumannsins á Akureyri og sýslumannsins á Snæfellsnesi.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 26. febrúar 2009, Innlent Línubátur að ólöglegum veiðum
- Miðvikudagur, 16. september 2009, Innlent TF-SIF tók bát í landhelgi
- Miðvikudagur, 12. ágúst 2009, Innlent Nauðsyn að fylgja skipum í höfn
- Þriðjudagur, 2. desember 2008, Innlent Henti siglingatölvu í gám
- Laugardagur, 29. nóvember 2008, Innlent Sönnunargagnið í sjóinn
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































