Hefðbundið pólitískt ofbeldi

Alþingismenn á fundi. stækka

Alþingismenn á fundi. mbl.is/Kristinn

„Það er verið að reyna að leysa þetta mál með hefðbundnum pólitískum ofbeldisaðferðum. Það er ekki gott en þetta er taktík sem við höfum áður séð,“ segir Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar um vinnu við Iceasave-málið í fjárlaganefnd Alþingis. Þór segir enn komnar fram lítt dulbúnar hótanir í garð stjórnarþingmanna sem andæfa óbreyttu frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave.

Fjárlaganefnd þingaði í morgun um breytingar á frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave en vinnuhópur fulltrúa allra flokka vann um helgina að gerð breytingartillagna og fyrirvara. Reiknað er með að hún komi aftur saman síðdegis eða í kvöld. Farið var yfir fyrirvara sem fulltrúar stjórnarflokkanna hafa lagt fram en að mati stjórnarandstæðinga ganga þeir ekki nógu langt.

Áfram verður reynt að ná samkomulagi um fyrirvara við ríkisábyrgðina og eru tveir hópar að skoða annars vegar með hvaða hætti setja megi efnahagslega fyrirvara og hins vegar möguleika á lagalegum fyrirvörum þingsins. Enn er ekki útséð með að samkomulag náist skv. heimildum mbl.is en óvíst er hvenær frumvarpið verður afgreitt úr nefndinni.

 „Þetta gengur hægt en þokast þó áfram. Það varð um það samkomulag í gær um að unnið yrði áfram með efnahagslega fyrirvara. Í morgun fannst mér hins vegar komið harðara hljóð í það sem ég kalla stjórnarminnihlutann, fulltrúa Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd. Það eru kominn alls kyns pólitísk útspil. Í morgun hófst mikil áróðursherferð gegn Ögmundi Jónassyni og VG-liðum sem hafa sett fyrirvara við ríkisábyrgð á Icesave að óbreyttu. Það er spurning hvort að þetta er aðferð samfylkingarfólks til að leysa málið,“ segir Þór Saari.

Hann vill ekki meina að menn séu að fara á taugum en þrýstingurinn sé mikill á að klára verkefnið.

„Mönnum fallast hendur stundum, enda verkefnið umfangsmikið. Það er eins og menn þori ekki að klára það með viðunandi hætti,“ segir Þór Saari.

Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar sagði í samtali við mbl.is í gær að það kæmi í ljós á næstu tveimur sólarhringum hvort nefndin valdi því hlutverki sínu að afgreiða Icesave samninginn. Nefndin hefur haft tvo mánuði til að afgreiða samninginn. Deilt er um orðalag fyrirvara sem settir yrðu en sumir þingmenn halda því fram að fyrirvarar jafngildi því að fella samningana.

„Fyrirvararnir eru ekkert óyfirstíganlegir, þeir eru mjög sanngjarnir og eðlilegir. Þetta eru fyrst og fremst fyrirvarar sem vernda Ísland og íslenska þjóðarbúið og skýra hagsmuni Íslendinga. Þetta eru ekki fyrirvarar sem ættu að gera Breta og Hollendinga mjög reiða. Það er hægt að klára málið á mjög skömmum tíma ef það er vilji til þess af hálfu Samfylkingarinnar,“ segir Þór Saari, fulltrúi Borgarahreyfingarinnar í fjárlaganefnd.

Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar og Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar alþingis.

Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar og Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar alþingis.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01 4 stk. Verð 15.000kr. Uppl. í sím...
PLASTMÓDEL
Plastmódel í miklu úrvali. Tómstundahúsið...
Yamaha FJR 1300 2005 ABS
Ekið 28 þús km.Umboðshjól.Skoðað 2013 Hliðartöskur og Topptaska. Nýtt afturdek...
BLEKHYLKI
Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ...
 
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...